Fara í efni

Skipulags- og framkvæmdaráð

242. fundur 25. ágúst 2026 kl. 13:00 - 15:00 í fundarsal GB5
Nefndarmenn
  • Þorsteinn Snævar Benediktsson formaður
  • Bylgja Steingrímsdóttir varaformaður
  • Salbjörg Matthíasdóttir aðalmaður
  • Brynjar Takacs Baldursson aðalmaður
  • Ísak Már Aðalsteinsson áheyrnarfulltrúi
  • Ómar Gunnarsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Ketill Gauti Árnason verkefnastjóri á framkvæmdasviði
  • Eyrún Torfadóttir Ritari
  • Bergþór Bjarnason sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Eyrún Torfadóttir stjórnsýslu- og þjónustufulltrúi
Dagskrá
Stefán Jón Sigurgeirsson, verkefnastjóri á velferðarsviði, sat fundinn undir lið 7.

1.Aðalbraut 27, Félagsheimili Hnitbjörg Raufarhöfn - uppsögn á leigusamningi

Málsnúmer 202608036Vakta málsnúmer

Fyrir skipulags- og framkvæmdaráði liggur uppsögn á leigusamningi rekstraraðila Félaginn bar á Raufarhöfn. Verkefnastjóri fer yfir stöðu hússins og kynnir fyrir ráðinu.
Skipulags- og framkvæmdaráð móttekur uppsögn á leigusamningi og felur sviðsstjóra á skipulags- og umhverfissviði að kanna framtíðarmöguleika hússins og leggja fyrir ráðið að nýju.

2.Ósk um leyfi til að reisa leiktæki á lóð Borgarhólsskóla

Málsnúmer 202608052Vakta málsnúmer

Fyrir skipulags- og framkvæmdaráði liggur umsókn um leyfi til uppbyggingar á leiktækjum á lóð Borgarhólsskóla.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir að veita leyfi til uppbyggingar á leiktækjum á lóð Borgarhólsskóla þar sem öll nauðsynleg gögn liggja fyrir.

3.Orkuveita Húsavíkur óskar eftir framkvæmdarleyfi við lagningu nýrrar vatnsveitu Grundargarður - Miðgarður og Stóragarð

Málsnúmer 202608112Vakta málsnúmer

Orkuveita Húsavíkur óskar eftir framkvæmdarleyfi við lagningu nýrrar vatnsveitu Grundargarður - Miðgarður og Stóragarð. Áætlað er að hefja framkvæmdir við Grundargarð um mánaðamót ágúst og september næstkomandi og er gert ráð fyrir að verktími verði um tveir og hálfur til þrír mánuðir.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir að veita Orkuveitu Húsavíkur framkvæmdaleyfi og felur sviðsstjóra á skipulags- og umhverfissviði að kynna nýja gönguleið barna á milli skóla og sundlaugar meðan á framkvæmdum stendur.
Samhliða framkvæmdunum verði einnig horft til þess að opna nýja akstursleið við íþróttahús að austanverðu samkvæmt gildandi deiliskipulagi.

4.Húsnæðismál stjórnsýslunnar

Málsnúmer 202608101Vakta málsnúmer

Á 165. fundi sveitarstjórnar var eftirfarandi bókað: Til máls tóku: Bergþór, Aldey, Ágúst, Bylgja, Kjartan, Helena og Eysteinn. Ágúst leggur fram eftirfarandi bókun: Í ársbyrjun 2024, flutti stjórnsýsla Norðurþings úr Stjórnsýsluhúsinu á Ketilsbraut 7-9 í bráðabirgða leiguhúsnæði. Leigugjald þar er 30 millj. á ári. Loftgæðum í húsnæðinu á Ketilsbraut var ábótavant vegna langvarandi vanrækslu á fyrirsjáanlegu viðhaldi hússins. Það er stefna M - Lista Samfélagsins að halda betur við húsnæði sveitarfélagsins, þannig að svona aðstæður skapist ekki. Á fundi Byggðaráðs 21.07.2026, lagði Rúnar Traustason oddviti listans fram bókun um þetta efni. Í mars 2026 tók meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks enn eina ákvörðunina að fresta framkvæmdum við endurbætur. Önnur framboð s.s. M Listi Samfélagsins, Samfylkingin og VG mótmæltu þessari ákvörðun. Hún kostar eins árs seinkun, 30 millj. auka í leigu. Við í M - Lista Samfélagsins styðjum framkomna tillögu. Ágúst Sigurður Óskarsson M - Lista Samfélagsins Sveitarstjórn samþykkir samhljóða fyrirliggjandi tillögu og vísar henni til frekari úrvinnslu í skipulags- og framkvæmdaráði.
Skipulags- og framkvæmdaráð felur sviðsstjóra á skipulags- og umhverfissviði að vinna í sundurliðaðri kostnaðaráætlun og forgangsröðun framkvæmda á Ketilsbraut 7-9 og kynna fyrir ráðinu að nýju.

5.Bygging sundlaugar í Lundi

Málsnúmer 202608102Vakta málsnúmer

Á 165. fundi sveitarstjórnar var eftirfarandi bókað: Til máls tóku: Þorsteinn, Rebekka, Ágúst og Ómar. Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða og vísað til skipulags- og framkvæmdaráðs til úrvinnslu.
Skipulags og - framkvæmdaráð felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að vinna að hönnun og kostnaðaráætlun og leggja fyrir ráðið á fyrsta fundi ráðsins í október 2026.

6.Salur Borgarhólsskóla

Málsnúmer 202608105Vakta málsnúmer

Á 165. fundi sveitarstjórnar var eftirfarandi bókað: Til máls tóku: Helena, Aldey, Ágúst og Þorsteinn. Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða og vísað til skipulags- og framkvæmdaráðs til úrvinnslu.
Skipulags- og framkvæmdaráð felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að hefja vinnu við frumhönnun og þarfagreiningu salarins í samráði við skólastjórnendur.

7.Umsókn um FIFA Arena - minipitch

Málsnúmer 202608104Vakta málsnúmer

Á 165. fundi sveitarstjórnar var eftirfarandi bókað: Til máls tóku: Kjartan, Ágúst, Aldey og Helena. Ágúst leggur fram eftirfarandi breytingartillögu: Ný grein: Lagt er til að málinu verði vísað til skipulags- og framkvæmdaráðs og fjölskylduráðs til úrvinnslu. Út falli: Samráð verði haft í skipulags- og framkvæmdaráði og fjölskylduráði um staðsetningu vallarins á skólalóðinni. Lagt er til að málinu verði vísað til skipulags- og framkvæmdaráðs til úrvinnslu. Breytingartillagan er felld með atkvæðum Kjartans, Eysteins, Þorsteins, Helenu, Ómars og Rebekku. Bylgja sat hjá. Fyrirliggjandi tillaga meirihluta sveitarstjórnar er samþykkt samhljóða og vísað til skipulags- og framkvæmdaráðs til frekari úrvinnslu.
Skipulags- og framkvæmdaráð felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að ganga frá umsókn að FIFA Arena - minipitch og leggja áætlaðan kostnaðarhluta sveitarfélagsins fyrir ráðið að nýju.

8.Umferðaröryggisáætlun

Málsnúmer 202608108Vakta málsnúmer

Á 165. fundi sveitarstjórnar var eftirfarandi bókað: Til máls tóku: Eysteinn og Aldey. Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða og vísað til skipulags- og framkvæmdaráðs til frekari úrvinnslu.
Skipulags- og framkvæmdaráð felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að leita tilboða í gerð umferðaröryggisáætlunar og leggja fyrir ráðið að nýju.

9.Yfirborðsfrágangur á Öskjureit

Málsnúmer 202608106Vakta málsnúmer

Á 165. fundi sveitarstjórnar var eftirfarandi bókað: Til máls tók: Eysteinn. Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða og vísað til skipulags- og framkvæmdaráðs til frekari úrvinnslu.
Skipulags- og framkvæmdaráð felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að kynna framkvæmdina fyrir hagaðilum á svæðinu og leggja málið fyrir ráðið að nýju. Framkvæmdin var hönnuð og kostnaðargreind árið 2024.

10.Íþróttahöllin á Húsavík - endurnýjun á gólfi, stúku og búnaði

Málsnúmer 202608103Vakta málsnúmer

Á 165. fundi sveitarstjórnar var eftirfarandi bókað: Til máls tóku: Kjartan, Aldey, Bergþór og Helena. Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða og vísað til skipulags- og framkvæmdaráðs til frekari úrvinnslu.
Skipulags- og framkvæmdaráð felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að vinna uppfærða kostnaðaráætlun og leggja fyrir ráðið að nýju.

11.Umsókn um stöðuleyfi fyrir gámatjaldi að Hrísmóum 5, Húsavík

Málsnúmer 202608134Vakta málsnúmer

GG2023 ehf. óskar eftir stöðuleyfi fyrir gámatjaldi að Hrísmóum 5, Húsavík
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir stöðuleyfi og felur byggingarfulltrúa að gefa út stöðuleyfi að Hrísmóum 5 vegna byggingarinnar til eins árs. þ.e. til 25.ágúst 2027.

Fundi slitið - kl. 15:00.