Fara í efni

Íþróttahöllin á Húsavík - endurnýjun á gólfi, stúku og búnaði

Málsnúmer 202608103

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Norðurþings - 165. fundur - 20.08.2026

Fulltrúar meirihluta sveitarstjórnar leggja til að í fjárhags- og fjárfestingaáætlunum ársins 2027 og þriggja ára áætlun áranna 2028-2030 verði gert ráð fyrir endurnýjun á gólfi og stúku íþróttahallarinnar á Húsavík. Samhliða því verði gert ráð fyrir endurnýjun á ýmsum búnaði vegna skólaíþrótta og íþróttaiðkunar. Lagt er til að málinu verði vísað til skipulags- og framkvæmdaráðs til úrvinnslu.
Til máls tóku: Kjartan, Aldey, Bergþór og Helena.

Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða og vísað til skipulags- og framkvæmdaráðs til frekari úrvinnslu.

Skipulags- og framkvæmdaráð - 242. fundur - 25.08.2026

Á 165. fundi sveitarstjórnar var eftirfarandi bókað: Til máls tóku: Kjartan, Aldey, Bergþór og Helena. Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða og vísað til skipulags- og framkvæmdaráðs til frekari úrvinnslu.
Skipulags- og framkvæmdaráð felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að vinna uppfærða kostnaðaráætlun og leggja fyrir ráðið að nýju.