Umsókn um FIFA Arena - minipitch
Málsnúmer 202608104
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Norðurþings - 165. fundur - 20.08.2026
Fulltrúar meirihluta sveitarstjórnar leggja til að sótt verði um til KSÍ að fá FIFA Arena mini-pitch í Norðurþing. Lagt er til að fáist umsóknin samþykkt verði völlurinn staðsettur á skólalóð Öxarfjarðarskóla. Jafnframt er lagt til að skipulags- og framkvæmdaráð kostnaðarmeti og geri ráð fyrir kostnaði við undirbúningsvinnu vegna uppsetningar á vellinum og frágangi umhverfis hann í fjárhags- og fjárfestingaáætlunum ársins 2027. Samráð verði haft í skipulags- og framkvæmdaráði og fjölskylduráði um staðsetningu vallarins á skólalóðinni. Lagt er til að málinu verði vísað til skipulags- og framkvæmdaráðs til úrvinnslu.
Skipulags- og framkvæmdaráð - 242. fundur - 25.08.2026
Á 165. fundi sveitarstjórnar var eftirfarandi bókað: Til máls tóku: Kjartan, Ágúst, Aldey og Helena. Ágúst leggur fram eftirfarandi breytingartillögu: Ný grein: Lagt er til að málinu verði vísað til skipulags- og framkvæmdaráðs og fjölskylduráðs til úrvinnslu. Út falli: Samráð verði haft í skipulags- og framkvæmdaráði og fjölskylduráði um staðsetningu vallarins á skólalóðinni. Lagt er til að málinu verði vísað til skipulags- og framkvæmdaráðs til úrvinnslu. Breytingartillagan er felld með atkvæðum Kjartans, Eysteins, Þorsteins, Helenu, Ómars og Rebekku. Bylgja sat hjá. Fyrirliggjandi tillaga meirihluta sveitarstjórnar er samþykkt samhljóða og vísað til skipulags- og framkvæmdaráðs til frekari úrvinnslu.
Skipulags- og framkvæmdaráð felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að ganga frá umsókn að FIFA Arena - minipitch og leggja áætlaðan kostnaðarhluta sveitarfélagsins fyrir ráðið að nýju.
Ágúst leggur fram eftirfarandi breytingartillögu:
Ný grein:
Lagt er til að málinu verði vísað til skipulags- og framkvæmdaráðs og fjölskylduráðs til úrvinnslu.
Út falli:
Samráð verði haft í skipulags- og framkvæmdaráði og fjölskylduráði um staðsetningu vallarins á
skólalóðinni. Lagt er til að málinu verði vísað til skipulags- og framkvæmdaráðs til úrvinnslu.
Breytingartillagan er felld með atkvæðum Kjartans, Eysteins, Þorsteins, Helenu, Ómars og Rebekku.
Bylgja sat hjá.
Fyrirliggjandi tillaga meirihluta sveitarstjórnar er samþykkt samhljóða og vísað til skipulags- og framkvæmdaráðs til frekari úrvinnslu.