Bygging sundlaugar í Lundi
Málsnúmer 202608102
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Norðurþings - 165. fundur - 20.08.2026
Fulltrúar meirihluta sveitarstjórnar leggja til að í fjárhags- og fjárfestingaáætlunum ársins 2027 verði gert ráð fyrir byggingu nýs sundlaugarkars í Lundi, ásamt frágangi í kringum sundlaugina. Jafnframt að gert verið ráð fyrir í þriggja ára áætlun að gerðar verði endurbætur á búningsklefum á árinu 2028.
Lagt er til að málinu verði vísað til skipulags- og framkvæmdaráðs til úrvinnslu.
Lagt er til að málinu verði vísað til skipulags- og framkvæmdaráðs til úrvinnslu.
Skipulags- og framkvæmdaráð - 242. fundur - 25.08.2026
Á 165. fundi sveitarstjórnar var eftirfarandi bókað: Til máls tóku: Þorsteinn, Rebekka, Ágúst og Ómar. Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða og vísað til skipulags- og framkvæmdaráðs til úrvinnslu.
Skipulags og - framkvæmdaráð felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að vinna að hönnun og kostnaðaráætlun og leggja fyrir ráðið á fyrsta fundi ráðsins í október 2026.
Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða og vísað til skipulags- og framkvæmdaráðs til úrvinnslu.