Skipulags- og framkvæmdaráð
Dagskrá
Ketill Gauti Árnason, verkefnastjóri á framkvæmdasviði, sat fundinn undir liðum 1 og 2.
1.Bygging sundlaugar í Lundi
Málsnúmer 202608102Vakta málsnúmer
Fyrir skipulags- og framkvæmdaráði liggur uppfærð kostnaðaráætlun fyrir nýja sundlaug í Lundi í Öxarfirði.
Skipulags- og framkvæmdaráð felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að kalla eftir frekari gögnum og leggja fyrir ráðið á fundi í fyrri hluta nóvember.
2.Ósk um samstarf og afstöðu sveitarfélagins til útihreystigarðs á Húsavík
Málsnúmer 202610047Vakta málsnúmer
Fyrir skipulags- og framkvæmdaráð liggur ósk frá Kvenfélagi Húsavíkur um samstarf og afstöðu sveitarfélagsins um útihreystigarð á Húsavík.
Skipulags- og framkvæmdaráð felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að útfæra staðsetningu í samráði við hagsmunaaðila og kostnaðargreina hlut sveitarfélagsins í verkefninu.
3.Deiliskipulag iðnaðarsvæðis á Bakka - 3. áfangi
Málsnúmer 202601015Vakta málsnúmer
Skipulags- og byggingarfulltrúi kynnti samantekt skipulagsráðgjafa á umsögnum sem bárust á kynningarstigi vinnslutillögu deiliskipulags. Ennfremur liggur fyrir fundi tillaga að deiliskipulagi svæðisins þar sem skilgreindar eru tvær nýjar iðnaðarlóðir innan skipulagssvæðisins og jafnframt fest í sessi fyrirliggjandi vegtenging við þjóðveg. Skipulagstillagan víkur allnokkuð frá þeirri vinnslutillögu sem kynnt var í september vegna breyttra hugmynda um uppbyggingu gagnavers. Lóð undir gagnaver hefur verið stækkuð og er nú teiknuð 8,2 ha að flatarmáli. Til að ekki þurfi að raska skráðum minjum Tröllaréttar er lóðin nú teiknuð nær þjóðvegi en áður var. Skipulagstillagan innifelur skipulagsuppdrátt (A2) og greinargerð með umhverfisskýrslu.
Skipulags- og framkvæmdaráð felur skipulags- og byggingarfulltrúa að kynna fyrirliggjandi tillögu að deiliskipulagi skv. ákvæðum skipulagslaga.
4.Umsókn um byggingarleyfi fyrir bílskýli að Álfhól 10, Húsavík
Málsnúmer 202610097Vakta málsnúmer
Aðalbjörg Sigurðardóttir og Ragnar Emilsson óska leyfis til að reisa bílskýli á lóð sinni að Álfhóli 10. Fyrir liggja teikningar unnar af Baldri Kristjánssyni. Einnig fylgir erindinu skriflegt samþykki nágranna.
Skipulags- og framkvæmdaráð telur grenndarkynningu fullnægjandi og heimilar því uppbygginguna.
Fundi slitið - kl. 14:30.