Fara í efni

Umferðaröryggisáætlun

Málsnúmer 202608108

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Norðurþings - 165. fundur - 20.08.2026

Fulltrúar meirihluta sveitarstjórnar leggja til að í fjárhagsáætlun ársins 2027 verði gert ráð fyrir vinnu við umferðaröryggisáætlun. Lagt er til að málinu verði vísað til skipulags- og framkvæmdaráðs til úrvinnslu, m.t.t. kostnaðar við gerð áætlunarinnar og fyrirkomulags við vinnu við hana.
Til máls tóku: Eysteinn og Aldey.

Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða og vísað til skipulags- og framkvæmdaráðs til frekari úrvinnslu.

Skipulags- og framkvæmdaráð - 242. fundur - 25.08.2026

Á 165. fundi sveitarstjórnar var eftirfarandi bókað: Til máls tóku: Eysteinn og Aldey. Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða og vísað til skipulags- og framkvæmdaráðs til frekari úrvinnslu.
Skipulags- og framkvæmdaráð felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að leita tilboða í gerð umferðaröryggisáætlunar og leggja fyrir ráðið að nýju.

Skipulags- og framkvæmdaráð - 243. fundur - 08.09.2026

Sviðsstjóri kynnti fyrir ráðinu tilboð í gerð umferðaröryggisáætlunar frá verkfræðistofunni Eflu.
Skipulags- og framkvæmdaráð felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að vinna viðauka að upphæð 4 m. kr. við gildandi fjárhagsáætlun og taka tilboði frá Eflu í verkið.