Salur Borgarhólsskóla
Málsnúmer 202608105
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Norðurþings - 165. fundur - 20.08.2026
Fulltrúar meirihluta sveitarstjórnar leggja til að í fjárhags- og fjárfestingaáætlunum ársins 2027 verði gert ráð fyrir vinnu og kostnaði vegna þarfagreiningar og frumhönnunar á sal Borgarhólsskóla m.t.t. endurbóta á salnum svo hann þjóni enn betur hlutverki sínu sem fjölnotasalur í skólastarfinu. Samráð verði haft í skipulags- og framkvæmdaráði og fjölskylduráði um vinnuna. Lagt er til að málinu verði vísað til skipulags- og framkvæmdaráðs til úrvinnslu.
Skipulags- og framkvæmdaráð - 242. fundur - 25.08.2026
Á 165. fundi sveitarstjórnar var eftirfarandi bókað: Til máls tóku: Helena, Aldey, Ágúst og Þorsteinn. Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða og vísað til skipulags- og framkvæmdaráðs til úrvinnslu.
Skipulags- og framkvæmdaráð felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að hefja vinnu við frumhönnun og þarfagreiningu salarins í samráði við skólastjórnendur.
Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða og vísað til skipulags- og framkvæmdaráðs til úrvinnslu.