Yfirborðsfrágangur á Öskjureit
Málsnúmer 202608106
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Norðurþings - 165. fundur - 20.08.2026
Fulltrúar meirihluta sveitarstjórnar leggja til að í fjárhags- og fjárfestingaáætlunum ársins 2027 verði gert ráð fyrir að yfirborðsfrágangi á lóðum sveitarfélagsins á Öskjureit verði lokið. Haft verði samráð við aðliggjandi lóðahafa um framkvæmdina. Lagt er til að málinu verði vísað til skipulags- og framkvæmdaráðs til úrvinnslu.
Skipulags- og framkvæmdaráð - 242. fundur - 25.08.2026
Á 165. fundi sveitarstjórnar var eftirfarandi bókað: Til máls tók: Eysteinn. Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða og vísað til skipulags- og framkvæmdaráðs til frekari úrvinnslu.
Skipulags- og framkvæmdaráð felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að kynna framkvæmdina fyrir hagaðilum á svæðinu og leggja málið fyrir ráðið að nýju. Framkvæmdin var hönnuð og kostnaðargreind árið 2024.
Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða og vísað til skipulags- og framkvæmdaráðs til frekari úrvinnslu.