Fara í efni

Orkuveita Húsavíkur óskar eftir framkvæmdarleyfi við lagningu nýrrar vatnsveitu Grundargarður - Miðgarður og Stóragarð

Málsnúmer 202608112

Vakta málsnúmer

Skipulags- og framkvæmdaráð - 242. fundur - 25.08.2026

Orkuveita Húsavíkur óskar eftir framkvæmdarleyfi við lagningu nýrrar vatnsveitu Grundargarður - Miðgarður og Stóragarð. Áætlað er að hefja framkvæmdir við Grundargarð um mánaðamót ágúst og september næstkomandi og er gert ráð fyrir að verktími verði um tveir og hálfur til þrír mánuðir.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir að veita Orkuveitu Húsavíkur framkvæmdaleyfi og felur sviðsstjóra á skipulags- og umhverfissviði að kynna nýja gönguleið barna á milli skóla og sundlaugar meðan á framkvæmdum stendur.
Samhliða framkvæmdunum verði einnig horft til þess að opna nýja akstursleið við íþróttahús að austanverðu samkvæmt gildandi deiliskipulagi.