Fara í efni

Ósk um stækkun lóðar að Höfða 5b, Húsavík

Málsnúmer 202608005

Vakta málsnúmer

Skipulags- og framkvæmdaráð - 241. fundur - 11.08.2026

Ingólfur Árnason f.h. Barms ehf og Þorkell Lindberg Þórarinsson f.h. Múrverks ehf óska eftir stækkun lóðar að Höfða 5b til samræmis við heimildir deiliskipulags.
Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við sveitarstjórn að lóðin að Höfða 5 verði stækkuð um 7 m til norðurs þannig að hún nái 13 m norður fyrir húslínu. Ráðið telur heppilegast að skilja eftir 8 m breytt svæði til gatnagerðar milli lóðanna að Höfða 5 og Höfða 7 þó gildandi deiliskipulag gangi út frá 6 m bili. Byggingarfulltrúa verði falið að gera lóðarleigusamning fyrir húsið að Höfða 5 á þeim grunni.