Fara í efni

Skipulags- og framkvæmdaráð

241. fundur 11. ágúst 2026 kl. 13:00 - 15:00 í fundarsal GB5
Nefndarmenn
  • Þorsteinn Snævar Benediktsson formaður
  • Bylgja Steingrímsdóttir varaformaður
  • Ómar Gunnarsson aðalmaður
  • Salbjörg Matthíasdóttir aðalmaður
  • Ísak Már Aðalsteinsson áheyrnarfulltrúi
  • Elín Guðmundsdóttir varamaður
Starfsmenn
  • Gaukur Hjartarson skipul.- og byggingarfulltrúi
  • Ketill Gauti Árnason verkefnastjóri á framkvæmdasviði
  • Eyrún Torfadóttir Ritari
  • Bergþór Bjarnason sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Eyrún Torfadóttir stjórnsýslu- og þjónustufulltrúi
Dagskrá
Bergþór Bjarnason, sveitarstjóri, sat fundinn undir liðum 7-14.

1.Erindi vegna þátttöku í Kolku, rafrænu losunarbókhaldi fyrir rekstur sveitarfélaga

Málsnúmer 202607021Vakta málsnúmer

Fyrir skipulags- og framkvæmdaráði liggur erindi frá SSNE vegna þátttöku í Kolku, rafrænu losunarbókhaldi fyrir rekstur sveitarfélaga.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir þátttöku sveitarfélagsins í Kolku, rafrænu losunarbókhaldi fyrir rekstur sveitarfélaga.

2.Erindi vegna uppsetningar skilta um bann við næturgistingu húsbíla og gistibifreiða á Raufarhöfn

Málsnúmer 202607036Vakta málsnúmer

Fyrir skipulags- og framkvæmdaráði liggur beiðni vegna uppsetningar skilta um bann við næturgistingu húsbíla og gistibifreiða á Raufarhöfn.
Skipulags- og framkvæmdaráð felur sviðsstjóra á skipulags- og umhverfissviði að koma upp viðeigandi skiltum.

3.Hverfisráð Raufarhafnar 2023-2026

Málsnúmer 202401123Vakta málsnúmer

Á 523. fundi byggðarráðs var eftirfarandi bókað:
Byggðarráð vísar liðum nr. 2 og 3 í fundargerð Hverfisráðs til umfjöllunar í skipulags- og framkvæmdaráði og liður nr. 3, einnig til Orkuveitu Húsavíkur.
Skipulags- og framkvæmdaráð þakkar fyrir ábendingar sem verða hafðar til hliðsjónar við fjárhagsáætlunargerð næsta árs.

4.Afhending gamla kirkjugarðsins á Húsavík til Norðurþings

Málsnúmer 202607049Vakta málsnúmer

Fyrir skipulags- og framkvæmdarráð liggur erindi frá kirkjugarðaráði um gamla kirkjugarðinn á Húsavík.
Skipulags- og framkvæmdaráð felur sviðstjóra skipulags- og umhverfissviðs að funda með framkvæmdastjóra kirkjugarðaráðs.

5.Umsókn um byggingarleyfi vegna framlengingu á þaki yfir bílskúr að Baldursbrekku 3, Húsavík

Málsnúmer 202608004Vakta málsnúmer

Unnsteinn Ingi Júlíusson og Anna Kristrún Sigmarsdóttir óska leyfis til að framlengja þak íbúðarhúss yfir bílskúr. Fyrir liggur rissmynd af breytingunni og skriflegt samþykki nágranna.
Skipulags- og framkvæmdaráð telur gögn fullnægjandi og heimilar byggingarfulltrúa að veita leyfi til framkvæmdanna.

6.Ósk um leyfi fyrir garðhúsi á lóðarmörkum Stórhóls 25-31

Málsnúmer 202608002Vakta málsnúmer

Fanney Hreinsdóttir og Guðmundur Árni Ólafsson óska eftir leyfi til að reisa 15 m² geymsluskúr við lóðarmörk að bæjarlandi skv. meðfylgjandi teikningum. Lóðarmörk á teikningum sýna mörk skv. gildandi deiliskipulagi en ekki hefur unnist að ganga frá lóðarleigusamningi fyrir húsið. Fyrir liggur skriflegt samþykki meðlóðarhafa raðhússins að Stórhóli 15-31.
Skipulags- og framkvæmdaráð gerir ekki athugasemdir við að húsið verði byggt á lóðarmörkum til samræmis við framlagðar teikningar.
Fylgiskjöl:

7.GG2023 ehf.óskar tímabundinna afnota á lóðinni Hrísmóar 5 til uppsetningar á gámatjaldi vegna tilraunaverkefnis

Málsnúmer 202606050Vakta málsnúmer

Á síðasta fundi ráðsins var eftirfarandi bókað:
skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við byggðaráð að GG2023 verði boðin tímabundin afnot af lóðinni að Hrísmóum 5 til loka september 2031. Sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs verði falið að gera drög að samningi um lóðarafnotin og kynna fyrir ráðinu við fyrsta tækifæri. Umsækjandi þarf að leggja fram skýrari gögn vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar, m.a. afstöðu hennar til lóðarmarka og byggingarreits.

Fyrir skipulags- og framkvæmdaráði liggja nú drög að landleigusamningi ásamt skýrari gögnum er varðar fyrirhugaða uppbyggingu á svæðinu.
Sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs er falið að klára samning skv. fyrirliggjandi drögum.

8.Umsagnarbeiðni vegna máls nr.09012026 í Skipulagsgátt

Málsnúmer 202607053Vakta málsnúmer

Húsnæðis-, mannvirkja og skipulagsstofnun óskar umsagnar Norðurþings vegna fyrirspurnar um matsskyldu vegna fyrirhugaðrar framleiðsluaukningar Silfurstjörnunnar í Öxarfirði. Breytingin felur í sér aukningu á heimiluðu framleiðslumagni úr 3.000 tonn/ári í 3.800 tonn/ári innan núverandi mannvirkja. Standandi lífmassi verður óbreyttur eða að hámarki 3.000 tonn. Ekki er gert ráð fyrir nýjum byggingum, eldiskerjum eða nýjum borholum í tengslum við aukninguna.
Skipulags- og framkvæmdaráð Norðurþings telur ekki tilefni til að fara fram á umhverfismatsferli vegna fyrirhugaðrar aukningar á framleiðslu innan lóðarinnar.

9.Ósk um stækkun lóðar að Höfða 5b, Húsavík

Málsnúmer 202608005Vakta málsnúmer

Ingólfur Árnason f.h. Barms ehf og Þorkell Lindberg Þórarinsson f.h. Múrverks ehf óska eftir stækkun lóðar að Höfða 5b til samræmis við heimildir deiliskipulags.
Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við sveitarstjórn að lóðin að Höfða 5 verði stækkuð um 7 m til norðurs þannig að hún nái 13 m norður fyrir húslínu. Ráðið telur heppilegast að skilja eftir 8 m breytt svæði til gatnagerðar milli lóðanna að Höfða 5 og Höfða 7 þó gildandi deiliskipulag gangi út frá 6 m bili. Byggingarfulltrúa verði falið að gera lóðarleigusamning fyrir húsið að Höfða 5 á þeim grunni.

10.Erindi frá íbúum í Auðbrekku 8 vegna gatnagerðar í Auðbrekku.

Málsnúmer 202608016Vakta málsnúmer

Fannar Emil H. Jónsson, f.h. íbúa í Auðbrekku 8 óskar eftir því að skoðað verði með að leggja bundið slitlag á alla götuna við Auðbrekku í þeim framkvæmdum sem nú eru að hefjast.
Skipulags- og framkvæmdaráð tekur jákvætt í erindið og felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að sjá til þess að gengið verði frá svæðinu að framkvæmdum loknum við Auðbrekku.

Bylgja vék af fundi undir málinu.

11.Umsókn um byggingarleyfi fyrir 53,8 m² tækjageymslu að Núpskötlu 1 á Melrakkasléttu

Málsnúmer 202608008Vakta málsnúmer

Gunnþór Kristjánsson óskar eftir byggingarleyfi fyrir 53,8 m² tækjageymslu á Núpskötlu á Melrakkasléttu. Teikningar eru unnar af Sigurbergi Árnasyni arkitekt. Fyrirhugað hús er byggt úr fyrirliggjandi timbri og með steyptri botnplötu. Brúttóflatarmál húss er 53,8 m² og brúttórúmmál er 184,3 m3.
Skipulags- og framkvæmdaráð fellst á uppbyggingu hússins og heimilar byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi þegar fullnægjandi gögnum þar að lútandi hefur verið skilað.

12.Kæra vegna ákvörðunar um synjun á opnanlegum gluggafögum

Málsnúmer 202605030Vakta málsnúmer

Kominn er úrskurður Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli nr. UUA2605004 vegna synjunar opnanlegra gluggafaga í Hafnarstétt 13. Úrskurðarnefndin vísar málinu frá.
Úrskurður lagður fram til kynningar.

13.Umsókn um rannsóknarleyfi

Málsnúmer 202509134Vakta málsnúmer

Solstice Materials ehf óska leyfis til jarðkönnunar vegna leitar að pozzolanvirkum steinefnum til sementsframleiðslu. Erindi frá fyrirtækinu var áður tekið fyrir á fundi 7. júlí s.l. Nú liggur fyrir nýtt minnisblað vegna fyrirhugaðra rannsókna. Afmörkun rannsóknarsvæða hefur verið breytt frá þeim hugmyndum sem kynntar voru í júlí. Annarsvegar er afmörkun könnunarsvæðis 1 breytt þannig að hún nái ekki inn á deiliskipulagt iðnaðarsvæði. Svæðið er nú 1,6 km² að flatarmáli. Þar er nú horft til sjö kjarnaborhola og sjö höggborhola í fyrsta áfanga. Gert er ráð fyrir að fyrirliggjandi vegslóðar dugi að mestu til rannsóknarvinnunnar en þó þarf að útbúa stutta slóða vegna nokkura borhola. Horft er til þess að hefja boranir á svæði 1 nú í ágúst. Í seinni áfanga rannsókna vegna svæðis 1 er horft til víðtækari borana. Rannsóknarsvæði 2 spannar um 11,7 km²svæði umhverfis Reyðarárbotna og þar er horft til rannsókna síðar og til nokkurra ára.
Skipulags- og framkvæmdaráð fellst á að veita leyfi fyrir 6 borstöðum innan rannsóknar svæðis 1, ráðið heimilar ekki borstað merktan BH 3. Ráðið samþykkir hinsvegar að Solstice Materials ehf verði veitt leyfi til að gera allt að 12 rannsóknarholur á um 160 ha svæði austan iðnaðarsvæðis á Bakka skv. mynd af rannsóknarsvæði 1. Verði niðurstöður jákvæðar og frekari rannsóknir á svæðinu fyrirhugaðar samkvæmt fasa 2, mun ráðið taka þær staðsetningar sérstaklega fyrir á seinni stigum. Ráðið tekur jákvætt í rannsóknir á svæði 2 í grennd við Reyðarárbotna en tekur ekki sérstaka afstöðu til þess þar sem staðsetningar rannsókna á því svæði liggja ekki fyrir. Taka ber fram að tveir aðilar séu nú þegar með rannsóknarleyfi í landi sveitarfélagsins.
Ráðið leggur til að unnin verði tillaga að samkomulagi milli Norðurþings og Solstice Materials ehf um samningsbundna vernd hagsmuna Solstice Materials og sveitarfélagsins vegna rannsóknanna.

Samningsdrög verða lögð fyrir ráð sveitarfélagsins þegar þau liggja fyrir.

14.Áskorun frá NASF til Norðurþings

Málsnúmer 202608041Vakta málsnúmer

Fyrir skipulags- og framkvæmdaráði liggur áskorun til sveitarstjórnar Norðurþings varðandi netaveiðar í sjó frá Verndarsjóði Villtra Laxastofna (NASF á Íslandi).
Skipulags- og framkvæmdaráð þakkar áskorunina og horfir til endurskoðunar á reglum um úthlutanir vegna netaveiða á göngusilungi í sjó fyrir landi Húsavíkur fyrir komandi vor.

Fundi slitið - kl. 15:00.