Afhending gamla kirkjugarðsins á Húsavík til Norðurþings
Málsnúmer 202607049
Vakta málsnúmerSkipulags- og framkvæmdaráð - 241. fundur - 11.08.2026
Fyrir skipulags- og framkvæmdarráð liggur erindi frá kirkjugarðaráði um gamla kirkjugarðinn á Húsavík.
Skipulags- og framkvæmdaráð felur sviðstjóra skipulags- og umhverfissviðs að funda með framkvæmdastjóra kirkjugarðaráðs.
Skipulags- og framkvæmdaráð - 244. fundur - 22.09.2026
Skipulags- og framkvæmdaráð fól sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að ræða við framkvæmdastjóra kirkjugarðaráðs vegna mögulegrar yfirfærslu á gamla kirkjugarðinum á Húsavík til Norðurþings. Sviðsstjóri hefur fundað með framkvæmdastjóra kirkjugarðaráðs og upplýst ráðið um stöðu málsins.
Skipulags- og framkvæmdaráð þakkar fyrir boðið en biðst undan að taka yfir umsjón gamla kirkjugarðsins að svo stöddu.