Skipulags- og framkvæmdaráð
Dagskrá
Arnhildur Pálmadóttir og Arnar Skarphéðisson frá Sap arkitektum sátu fundinn undir lið 1.
1.Veðurdrifinn arkitektúr og skipulag byggðar
Málsnúmer 202608079Vakta málsnúmer
Arnhildur Pálmadóttir arkitekt óskar samstarfs við Norðurþing vegna rannsóknar og þróunarverkefnis um skipulagsgerð og hönnun bygginga með hliðsjón af staðbundnu veðurfari.
Ráðið þakkar fyrir kynninguna og lýsir sig reiðubúið til frekara samstarfs.
2.Erindi er varðar 16.gr.laga nr.551992
Málsnúmer 202509059Vakta málsnúmer
Á 527. fundi byggðarráðs var eftirfarandi bókað:
Fyrir byggðarráði liggur erindi frá Náttúruhamfaratryggingu Íslands þar sem vakin er athygli á áhrifum 16. gr. laga nr. 55/1992 ef byggingar eru reistar á svæðum sem fyrir fram er vitað að eru sérlega næm fyrir náttúruhamförum sem eru bótaskyldar hjá NTÍ.
Byggðarráð vísar málinu til kynningar í skipulags- og framkvæmdaráði.

Lagt fram til kynningar.
3.Ósk um umsögn um tillögu að á vinnslustigi vegna nýs aðalskipulags Tjörneshrepps
Málsnúmer 202608169Vakta málsnúmer
Tjörneshreppur óskar umsagnar um tillögu á vinnslustigi að nýju aðalskipulagi Tjörneshrepps. Málið var áður tekið fyrir á síðasta fundi ráðsins.
Skipulags- og framkvæmdaráð Norðurþings hefur ekki athugasemdir við fyrirliggjandi tillögu að aðalskipulagi Tjörneshrepps á þessu stigi.
4.Aðalskoðun leiksvæða 2026- Lundur
Málsnúmer 202609022Vakta málsnúmer
Erindi frá skólastjóra Öxarfjarðarskóla dags. 8. september 2026 vegna úttekar BSI á leikvöllum skólans.
Skipulags- og framkvæmdaráð þakkar skólastjóra Öxarfjarðarskóla fyrir erindið.
Norðurþing er með samning við BSI á Íslandi um úttekt á leikvöllum sveitarfélagsins. Árlegar úttektir fara yfirleitt fram í júní og júlí og er ekki boðað sérstaklega til þeirra á undan. Þegar úttektum er lokið og skýrslur liggja fyrir um ástand leikvalla, hefur venjan verið sú að nauðsynlegar úrbætur hafa verið gerðar innan tilskilins frests. Ráðið felur sviðsstjóra að vinna að úrbótum á leiksvæðinu áður en frestur rennur út og gera viðhalds- og kostnaðaráætlun fyrir leikvelli í sveitarfélaginu öllu og leggja fyrir ráðið að nýju.

5.Bréf frá nemendum á Grænuvöllum
Málsnúmer 202609050Vakta málsnúmer
Á 527. fundi byggðarráðs var eftirfarandi bókað:
Fyrir byggðarráði liggur bréf frá nemendum á Árholti, elstu deildinni á leikskólanum Grænuvöllum.
Byggðarráð þakkar börnunum á Árholti fyrir frumkvæðið og metnaðinn sem þau sýndu með erindinu. Markmiðið er að bæta aðstöðuna á leikskólalóðinni og gera leiktækin örugg og skemmtileg fyrir börnin sem allra fyrst. Ráðið vísar erindinu til skipulags- og framkvæmdaráðs og fjölskylduráðs.

Skipulags- og framkvæmdaráð þakkar börnunum á Árholti fyrir frumkvæðið og metnaðinn sem þau sýndu með erindinu. Markmiðið er að bæta aðstöðuna á leikskólalóðinni og gera leiktækin örugg og skemmtileg fyrir börnin sem allra fyrst.
Ráðið hefur erindið til hliðsjónar við fjárhagsáætlunargerð í haust og mun leitast til við að setja leiksvæðið á Grænuvöllum í forgang í viðhaldi og endurnýjun leiksvæða.

6.Endurhönnun og endurbætur á leikskólalóð Grænuvalla
Málsnúmer 202609106Vakta málsnúmer
Fulltrúi M - Lista Samfélagsins leggur til að í fjárhags- og fjárfestingaáætlunum ársins 2027 verði gert ráð fyrir
endurhönnun og endurbótum á lóð Leikskólans Grænuvöllum. Lagt er til að málinu verði vísað til skipulags- og
framkvæmdaráðs og fjölskylduráðs til úrvinnslu og við verkefnið verði samráð við leikskólastjóra, starfsmenn og
fulltrúa foreldra.

Skipulags- og framkvæmdaráð vísar í bókun undir máli nr. 5 á 244. fundi ráðsins, bréf frá nemendum á Grænuvöllum.
7.Tillaga að uppbyggingu skíðasvæðis í Reyðarárhnjúk Skíðasvæði Húsavíkur
Málsnúmer 202608181Vakta málsnúmer
Á 527. fundi byggðarráðs var eftirfarandi bókað:
Undirritaður leggur til að sett verði inn á þriggja ára fjárhags- og fjárfestingaáætlun 2028-2030 uppbygging á skíðasvæðinu í Reyðarárhnjúk. Mikið og öflugt frumkvöðlastarf fór fram árið 2019 við að flytja skíðasvæðið við Húsavík upp í Reyðarárhnjúk og mikilvægt er að halda áfram þeirri uppbyggingu. Það styður við og styrkir sveitarfélagið sem heilsueflandi samfélag og getur verið mikilvægur þáttur í að efla Norðurþing sem áfangastað yfir vetrarmánuðina. Hönnunarskýrsla fyrir svæðið var gerð af SE Group árið 2023 en það á eftir að klára deiliskipulag fyrir svæðið. Undirritaður leggur til að málinu verði vísað til skipulags- og framkvæmdaráðs til úrvinnslu. Rúnar Traustason
Byggðarráð samþykkir tillögu Rúnars og vísar málinu til vinnu við fjárfestingaráætlun 2027-2031 hjá skipulags- og framkvæmdaráði og fjölskylduráði.

Skipulags- og framkvæmdaráð vísar málinu til vinnu við fjárhagsáætlunargerð 2027-2031.
8.Afhending gamla kirkjugarðsins á Húsavík til Norðurþings
Málsnúmer 202607049Vakta málsnúmer
Skipulags- og framkvæmdaráð fól sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að ræða við framkvæmdastjóra kirkjugarðaráðs vegna mögulegrar yfirfærslu á gamla kirkjugarðinum á Húsavík til Norðurþings. Sviðsstjóri hefur fundað með framkvæmdastjóra kirkjugarðaráðs og upplýst ráðið um stöðu málsins.
Skipulags- og framkvæmdaráð þakkar fyrir boðið en biðst undan að taka yfir umsjón gamla kirkjugarðsins að svo stöddu.
9.Tjaldsvæðið á Húsavík 2026
Málsnúmer 202609121Vakta málsnúmer
Tjald ehf. óskar eftir að fá framlengdan leigusamninginn fyrir tjaldsvæðið á Húsavík um eitt ár eins og heimilt er samkvæmt gildandi leigusamningi.
Skipulags- og framkvæmdaráð þakkar fyrir gott samstarf sl. 3 ár og samþykkir að framlengja leigusamninginn við Tjald ehf. um eitt ár, líkt og heimilt er skv. 5. grein samningsins og felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að ganga frá samningi þess efnis.
10.Umhverfis- og loftlagsstefna Norðurþings
Málsnúmer 201707063Vakta málsnúmer
Sviðsstjóri kynnti fyrir skipulags- og framkvæmdaráði umhverfis- og loftslagstefnu sveitarfélagsins frá 2025 og þær aðgerðir sem eru framundan samkvæmt gildandi aðgerðaráætlun.
Skipulags- og framkvæmdaráð þakkar sviðsstjóra fyrir kynninguna.
Fundi slitið - kl. 15:25.