Fara í efni

Bréf frá nemendum á Grænuvöllum

Málsnúmer 202609050

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Norðurþings - 527. fundur - 10.09.2026

Fyrir byggðarráði liggur bréf frá nemendum á Árholti, elstu deildinni á leikskólanum Grænuvöllum.
Byggðarráð þakkar börnunum á Árholti fyrir frumkvæðið og metnaðinn sem þau sýndu með erindinu. Markmiðið er að bæta aðstöðuna á leikskólalóðinni og gera leiktækin örugg og skemmtileg fyrir börnin sem allra fyrst.

Ráðið vísar erindinu til skipulags- og framkvæmdaráðs og fjölskylduráðs.

Skipulags- og framkvæmdaráð - 244. fundur - 22.09.2026

Á 527. fundi byggðarráðs var eftirfarandi bókað:

Fyrir byggðarráði liggur bréf frá nemendum á Árholti, elstu deildinni á leikskólanum Grænuvöllum.

Byggðarráð þakkar börnunum á Árholti fyrir frumkvæðið og metnaðinn sem þau sýndu með erindinu. Markmiðið er að bæta aðstöðuna á leikskólalóðinni og gera leiktækin örugg og skemmtileg fyrir börnin sem allra fyrst. Ráðið vísar erindinu til skipulags- og framkvæmdaráðs og fjölskylduráðs.
Skipulags- og framkvæmdaráð þakkar börnunum á Árholti fyrir frumkvæðið og metnaðinn sem þau sýndu með erindinu. Markmiðið er að bæta aðstöðuna á leikskólalóðinni og gera leiktækin örugg og skemmtileg fyrir börnin sem allra fyrst.
Ráðið hefur erindið til hliðsjónar við fjárhagsáætlunargerð í haust og mun leitast til við að setja leiksvæðið á Grænuvöllum í forgang í viðhaldi og endurnýjun leiksvæða.

Fjölskylduráð - 248. fundur - 29.09.2026

Á 527. fundi byggðarráðs var eftirfarandi bókað:

Fyrir byggðarráði liggur bréf frá nemendum á Árholti, elstu deildinni á leikskólanum Grænuvöllum.

Byggðarráð þakkar börnunum á Árholti fyrir frumkvæðið og metnaðinn sem þau sýndu með erindinu. Markmiðið er að bæta aðstöðuna á leikskólalóðinni og gera leiktækin örugg og skemmtileg fyrir börnin sem allra fyrst. Ráðið vísar erindinu til skipulags- og framkvæmdaráðs og fjölskylduráðs.
Fjölskylduráð þakkar nemendum á Árholti fyrir erindið og flottar hugmyndir. Markmiðið er að gera leikskólalóðina við Grænuvelli skemmtilega og leiktækin örugg sem allra fyrst.