Fjölskylduráð
Dagskrá
1.Öxarfjarðarskóli - Starfsáætlun 2026-2027.
Málsnúmer 202608126Vakta málsnúmer
Skólastjóri kynnir starfsáætlun Öxarfjarðarskóla 2026-2027.
Lagt fram til kynningar.
2.Öxarfjarðarskóli - Skýrsla um innra mat 2025-2026.
Málsnúmer 202606042Vakta málsnúmer
Skólastjóri kynnir umbótaverkefni vetrarins í kjölfar niðurstaðna innra mats.
Lagt fram til kynningar.
3.Íslenska æskulýðsrannsóknin 2026
Málsnúmer 202512069Vakta málsnúmer
Skólastjóri fer yfir viðbrögð skólans við niðurstöðum úr Íslensku æskulýðsrannsókninni 2026.
Lagt fram til kynningar.
4.Beiðni um lokunardag í Frístund
Málsnúmer 202609162Vakta málsnúmer
Fyrir fjölskylduráði liggur ósk frá skólastjóra Borgarhólsskóla um að frístund verði lokuð föstudaginn 9.október vegna flutninga starfseminnar í nýtt húsnæði. Skólastjóri telur mikilvægt að hægt sé að sinna flutningunum með skipulögðum og öruggum hætti, án þess að börn eða starfssemi Frístundar séu í húfi á meðan á flutningum stendur. Með því að loka Frístund einn dag gefst starfsfólki nauðsynlegt svigrúm til að ganga frá nýju húsnæði, koma búnaði fyrir og tryggja að aðstaðan sé tilbúin til notkunar sem líklegast yrði miðvikudaginn 14.október (eftir haustfrí).
Fjölskylduráð samþykkir lokun í Frístund föstudaginn 9. október vegna flutninga starfseminnar í nýtt húsnæði.
5.Borgarhólsskóli og Skólamötuneyti Húsavíkur - Ósk um breytingar á aðgengi að mötuneyti og tengdum svæðum.
Málsnúmer 202609137Vakta málsnúmer
Fyrir fjölskylduráði liggur erindi frá skólastjóra og yfirmatráð í Borgarhólsskóla með ósk með ósk um breytingar á aðgengi að mötuneyti og tengdum svæðum.
Fjölskylduráð vísar erindinu til skipulags- og framkvæmdaráðs til úrvinnslu.
6.Mærudagar 2024 - 2026
Málsnúmer 202312102Vakta málsnúmer
Fyrir fjölskylduráði liggja fyrir skýrslur framkvæmdastjóra Mærudaga og fjölmenningarfulltrúa um Mærudaga 2026.
Lagt fram til kynningar.
7.Ósk um samtal vegna Mærudaga
Málsnúmer 202609085Vakta málsnúmer
Fyrir fjölskylduráði liggur erindi frá Ágústi Þór, Hjálmari Boga og Óskari Páli þar sem óskað er eftir fundi með fjölskylduráði þar sem rædd verða hin ýmsu mál varðandi Mærudaga.
Fjölskylduráð þakkar erindið og felur fjölmenningafulltrúa að eiga frekara samtal við hlutaðeigendur.
8.Mærudagar 2027
Málsnúmer 202609004Vakta málsnúmer
Fyrir fjölskylduráði liggur umræða um Mærudaga þar sem samningur við núverandi framkvæmdastjóra hátíðarinnar rann út á þessu ári og taka þarf ákvörðun um áframhaldandi fyrirkomulag hátíðarinnar.
Fjölskylduráð ræðir framtíð og fyrirkomulag Mærudaga. Fjölskylduráð heldur áfram umræðum á fundi ráðsins í október.
9.Tillaga að uppbyggingu skíðasvæðis í Reyðarárhnjúk Skíðasvæði Húsavíkur
Málsnúmer 202608181Vakta málsnúmer
Á 527. fundi byggðarráðs var eftirfarandi bókað:
Undirritaður leggur til að sett verði inn á þriggja ára fjárhags- og fjárfestingaáætlun 2028-2030 uppbygging á skíðasvæðinu í Reyðarárhnjúk. Mikið og öflugt frumkvöðlastarf fór fram árið 2019 við að flytja skíðasvæðið við Húsavík upp í Reyðarárhnjúk og mikilvægt er að halda áfram þeirri uppbyggingu. Það styður við og styrkir sveitarfélagið sem heilsueflandi samfélag og getur verið mikilvægur þáttur í að efla Norðurþing sem áfangastað yfir vetrarmánuðina. Hönnunarskýrsla fyrir svæðið var gerð af SE Group árið 2023 en það á eftir að klára deiliskipulag fyrir svæðið. Undirritaður leggur til að málinu verði vísað til skipulags- og framkvæmdaráðs til úrvinnslu. Rúnar Traustason
Byggðarráð samþykkir tillögu Rúnars og vísar málinu til vinnu við fjárfestingaráætlun 2027-2031 hjá skipulags- og framkvæmdaráði og fjölskylduráði.

10.Jólin mín og þín 2026 - tónleikasýning Tónasmiðjunnar
Málsnúmer 202609130Vakta málsnúmer
Fyrir fjölskylduráð liggur erindi frá Tónasmiðjunni vegna jólatónleikasýningar sem stendur til að halda 5. desember nk. Óska þau eftir endurgjaldslausum afnotum af Íþróttahöllinni á Húsavík dagana 4. og 5. desember.
Fjölskylduráð samþykkir að veita Tónasmiðjunni endurgjaldslaus afnot af íþróttahöllinni á Húsavík dagana 4. og 5. desember.
11.Bréf frá nemendum á Grænuvöllum
Málsnúmer 202609050Vakta málsnúmer
Á 527. fundi byggðarráðs var eftirfarandi bókað:
Fyrir byggðarráði liggur bréf frá nemendum á Árholti, elstu deildinni á leikskólanum Grænuvöllum.
Byggðarráð þakkar börnunum á Árholti fyrir frumkvæðið og metnaðinn sem þau sýndu með erindinu. Markmiðið er að bæta aðstöðuna á leikskólalóðinni og gera leiktækin örugg og skemmtileg fyrir börnin sem allra fyrst. Ráðið vísar erindinu til skipulags- og framkvæmdaráðs og fjölskylduráðs.

Fjölskylduráð þakkar nemendum á Árholti fyrir erindið og flottar hugmyndir. Markmiðið er að gera leikskólalóðina við Grænuvelli skemmtilega og leiktækin örugg sem allra fyrst.
12.Öldungaráð 2026-2030
Málsnúmer 202606128Vakta málsnúmer
Fyrir fjölskylduráði liggur fundargerð 1. fundar öldungaráðs Norðurþings.
Lagt fram til kynningar.
13.Notendaráð fatlaðs fólks í Norðurþingi 2026-2030
Málsnúmer 202606127Vakta málsnúmer
Fyrir fjölskylduráði liggur fundargerð 1. fundar Notendaráðs fatlaðs fólks í Norðurþingi.
Lagt fram til kynningar.
14.Trúnaðarmál
15.Áætlun um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða um farsæld barna á Norðurlandi eystra 2027-2030
Málsnúmer 202609097Vakta málsnúmer
Fyrir fjölskylduráði liggur áætlun um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða um farsæld barna á Norðurlandi eystra 2027-2030.
Fjölskylduráð felur félagsmálastjóra að framfylgja áætlun um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða um farsæld barna á Norðurlandi eystra 2027-2030.
16.Starfshópur um endurskoðun leikskólagjalda
Málsnúmer 202609104Vakta málsnúmer
Á 166. fundi sveitarstjórnar var eftirfarandi bókað: Ágúst leggur fram eftirfarandi breytingartillögu: Í stað ?Fulltrúar meirihluta sveitarstjórnar leggja til?, komi ?Sveitarstjórn leggur til.? Breytingartillaga Ágústar er samþykkt samhljóða.
Ráðið leggur til að við fjárhagsáætlunargerð fjölskylduráðs verði gert ráð fyrir starfshópi sem muni taka til endurskoðunar gjaldskrá leikskóla og fyrirkomulag leikskólaþjónustu og skili tillögum fyrir fjárhagsáætlunargerð 2028.
17.Endurhönnun og endurbætur á leikskólalóð Grænuvalla
Málsnúmer 202609106Vakta málsnúmer
Á 166. fundi sveitarstjórnar var eftirfarandi bókað:
Fulltrúi M - Lista Samfélagsins leggur til að í fjárhags- og fjárfestingaáætlunum ársins 2027 verði gert ráð fyrir endurhönnun og endurbótum á lóð Leikskólans Grænuvöllum. Lagt er til að málinu verði vísað til skipulags- og framkvæmdaráðs og fjölskylduráðs til úrvinnslu og við verkefnið verði samráð við leikskólastjóra, starfsmenn og fulltrúa foreldra.
Til máls tóku: Ágúst, Þorsteinn, Aldey og Helena. Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða.

Fjölskylduráð leggur áherslu á að samráð verði haft við ráðið og starfsfólk við endurhönnun og endurbætur á leikskólalóð Grænuvalla.
18.Heimgreiðslur til foreldra barna á leikskólaaldri.
Málsnúmer 202306085Vakta málsnúmer
Fjölskylduráð hefur til umfjöllunar drög að endurskoðuðum reglum um heimgreiðslur
Fjölskylduráð felur fræðslufulltrúa að uppfæra reglurnar í samræmi við umræður á fundinum. Reglurnar verða endurskoðaðar í vinnu starfshóps um endurskoðun leikskólagjalda og fyrirkomulag leikskólaþjónsutu.
Fundi slitið - kl. 11:15.
Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir, skólastjóri Borgarhólsskóla, sat fundinn undir liðum 4. og 5.
Dagný Þóra Gylfadóttir, yfirmatráður í Borgarhólsskóla, sat fundinn undir lið 5.
Guðrún Huld Gunnarsdóttir, verkefnastjóri Mærudaga, sat fundinn undir lið 6.
Nele Marie Beitelstein, fjölmenningarfulltrúi, sat fundinn undir liðum 6 - 8.
Stefán Jón Sigurgeirsson, verkefnastjóri á velferðarsviði, sat fundinn undir liðum 9-11.
Tinna Ósk Óskarsdóttir, félagsmálastjóri, sat fundinn undir liðum 12-15.