Beiðni um lokunardag í Frístund
Málsnúmer 202609162
Vakta málsnúmerFjölskylduráð - 248. fundur - 29.09.2026
Fyrir fjölskylduráði liggur ósk frá skólastjóra Borgarhólsskóla um að frístund verði lokuð föstudaginn 9.október vegna flutninga starfseminnar í nýtt húsnæði. Skólastjóri telur mikilvægt að hægt sé að sinna flutningunum með skipulögðum og öruggum hætti, án þess að börn eða starfssemi Frístundar séu í húfi á meðan á flutningum stendur. Með því að loka Frístund einn dag gefst starfsfólki nauðsynlegt svigrúm til að ganga frá nýju húsnæði, koma búnaði fyrir og tryggja að aðstaðan sé tilbúin til notkunar sem líklegast yrði miðvikudaginn 14.október (eftir haustfrí).
Fjölskylduráð samþykkir lokun í Frístund föstudaginn 9. október vegna flutninga starfseminnar í nýtt húsnæði.