Fara í efni

Starfshópur um endurskoðun leikskólagjalda

Málsnúmer 202609104

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Norðurþings - 166. fundur - 17.09.2026

Fulltrúar meirihluta sveitarstjórnar leggja til að í fjárhagsáætlun ársins 2027 verði gert ráð fyrir starfshópi sem muni taka til endurskoðunar gjaldskrá leikskóla og fyrirkomulag leikskólaþjónustu og skila tillögum þar um fyrir fjárhagsáætlanagerð ársins 2028.
Lagt er til að málinu verði vísað til fjölskylduráðs til úrvinnslu.
Til máls tóku: Rebekka og Ágúst.

Ágúst leggur fram eftirfarandi breytingartillögu: Í stað „Fulltrúar meirihluta sveitarstjórnar leggja til“, komi „Sveitarstjórn leggur til.“
Breytingartillaga Ágústar er samþykkt samhljóða.