Sveitarstjórn Norðurþings
Dagskrá
1.Starfsstöð Stofnunar atvinnuveganna
Málsnúmer 202609113Vakta málsnúmer
Stofnun atvinnuveganna verður til við sameiningu Fiskistofu, Verðlagsstofu skiptaverðs og Matvælastofnunar (MAST) og er ætlunin að hún taki til starfa í upphafi árs 2027.
Hluti verkefna nýrrar Stofnunar atvinnuveganna eru m.a. verkefni sem fram að því að stofnunin tekur til starfa eru á höndum heilbrigðiseftirlits sveitarfélaganna. Þá tengjast verkefni stofnunarinnar starfsemi sem er umfangsmikil í Þingeyjarsýslunum gömlu, eins og fiskrækt, jarðrækt og matvælaframleiðsla.
Nýverið kom út skýrsla á vegum Byggðastofnunar um staðsetningu ríkisstarfa á árinu 2025. Þar kemur fram að störfum á vegum ríksins hefur frá árinu 2023 til ársins 2025 fækkað um 24 í Norðurþingi, úr 233 í 209.
Í sveitarfélögum sem eru sambærileg Norðurþingi eru störf á vegum ríkisins ívið fleiri. Má nefna t.d. Borgarbyggð 249 störf, Ísafjörður 365 störf, Skagafjörður 336 störf, Fjarðabyggð 282 störf og Múlaþing 330 störf. Í sumum þeirra hefur störfum m.a.s. fjölgað á undanförnum árum.
Sveitarstjórn Norðurþings leggur til við atvinnuvegaráðherra að Stofnun atvinnuveganna opni starfsstöð í Norðurþingi á árinu 2027 og ráðið í staðbundin störf á starfstöðinni.
Lagt er til að sveitarstjóra verði falið að koma tillögunni á framfæri við atvinnuvegaráðherra.

2.Starfshópur um endurskoðun leikskólagjalda
Málsnúmer 202609104Vakta málsnúmer
Fulltrúar meirihluta sveitarstjórnar leggja til að í fjárhagsáætlun ársins 2027 verði gert ráð fyrir starfshópi sem muni taka til endurskoðunar gjaldskrá leikskóla og fyrirkomulag leikskólaþjónustu og skila tillögum þar um fyrir fjárhagsáætlanagerð ársins 2028.
Lagt er til að málinu verði vísað til fjölskylduráðs til úrvinnslu.

Til máls tóku: Rebekka og Ágúst.
Ágúst leggur fram eftirfarandi breytingartillögu: Í stað „Fulltrúar meirihluta sveitarstjórnar leggja til“, komi „Sveitarstjórn leggur til.“
Breytingartillaga Ágústar er samþykkt samhljóða.

3.Frístundastyrkir 2027
Málsnúmer 202609105Vakta málsnúmer
Fulltrúar meirihluta sveitarstjórnar leggja til að í fjárhagsáætlun ársins 2027 verði gert ráð fyrir að frístundastyrkir barna- og unglinga verði 40.000 kr.
Jafnframt er lagt til að málinu verði vísað til fjölskylduráðs til úrvinnslu.

Til máls tók: Helena.
Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða.

4.Endurhönnun og endurbætur á leikskólalóð Grænuvalla
Málsnúmer 202609106Vakta málsnúmer
Fulltrúi M - Lista Samfélagsins leggur til að í fjárhags- og fjárfestingaáætlunum ársins 2027 verði gert ráð fyrir endurhönnun og endurbótum á lóð Leikskólans Grænuvöllum. Lagt er til að málinu verði vísað til skipulags- og framkvæmdaráðs og fjölskylduráðs til úrvinnslu og við verkefnið verði samráð við leikskólastjóra, starfsmenn og fulltrúa foreldra.
Til máls tóku: Ágúst, Þorsteinn, Aldey og Helena.
Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða.
Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða.
5.Álit sveitarstjórna á vindorkuhugmyndum sem er til umfjöllunar í 6. áfanga rammaáætlunar
Málsnúmer 202608162Vakta málsnúmer
Á 527. fundi byggðarráðs var eftirfarandi bókað:
Fyrir byggðarráði liggur erindi þar sem óskað er eftir áliti sveitarstjórnar á vindorkuhugmyndum sem er til umfjöllunar í 6. áfanga rammaáætlunar. Byggðarráð vísar málinu til afgreiðslu í sveitarstjórn. Sveitarstjóra er falið að vinna drög að umsögn vegna erindisins sem verður til umfjöllunar á næsta fundi sveitarstjórnar.
Ómar Gunnarsson vék af fundi undir þessum lið.

Forseti leggur fram eftirfarandi tillögu að umsögn sveitarstjórnar:
Sveitarstjórn Norðurþings hefur ekki lýst yfir formlegri afstöðu til uppbyggingar vindorkuvers á Hnotasteini. Sveitarstjórn hefur samt sem áður unnið með fyrirtæki sem kannar möguleika á uppbyggingu vindorkuvers.Sveitarstjórn telur mikilvægt að við mat á virkjanahugmyndum Hnotasteins verði horft heildstætt til áhrifa þeirra á nærsamfélagið, bæði hvað varðar samfélagsleg, efnahagsleg og umhverfisleg áhrif þar sem um verkefnið eru skiptar skoðanir í nærsamfélaginu og innan sveitarstjórnar Norðurþings.
Sveitarstjórn leggur áherslu á að vandað samráð eigi sér stað við sveitarfélagið, íbúa og aðra hagaðila á öllum stigum verkefnisins. Gott upplýsingaflæði og virkt samráð eru mikilvægar forsendur þess að ólík sjónarmið komi fram og að unnt sé að vinna að sem mestri sátt um mögulegar framkvæmdir.
Sveitarstjórn telur mikilvægt að mögulegar framkvæmdir við vindorkuver á Hnotasteini skili nærsamfélaginu áþreifanlegum og varanlegum ávinningi. Þar ber meðal annars að horfa til tekna sveitarfélagsins, starfa við uppbyggingu og rekstur, verkefna fyrir fyrirtæki á svæðinu og uppbyggingar innviða sem nýtast samfélaginu til lengri tíma. Slík uppbygging getur jafnframt skapað forsendur fyrir fjölgun íbúa og frekari styrkingu þjónustu og samfélagslegra innviða.
Á móti þarf að leggja vandað mat á áhrif framkvæmda og reksturs á náttúru, landslag og nærumhverfi, þar á meðal sýnileika mannvirkja, hávaða og önnur skynræn áhrif. Mikilvægt er að leitast verði við að lágmarka neikvæð áhrif og að tekið sé tillit til sjónarmiða nærsamfélagsins við útfærslu verkefna.
Sveitarstjórn leggur að lokum áherslu á að orkuvinnsla og atvinnuuppbygging verði skoðuð í samhengi. Verði af aukinni orkuvinnslu á svæðinu er mikilvægt að hún skapi raunveruleg tækifæri til langtíma verðmætasköpunar, fjölgunar fjölbreyttra og verðmætra starfa og styrkingar byggðar í Norðurþingi og á Norðausturlandi.
Tillagan er samþykkt samhljóða.

6.Áætlun um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða um farsæld barna á Norðurlandi eystra 2027-2030
Málsnúmer 202609097Vakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur áætlun um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða um farsæld barna á Norðurlandi eystra 2027-2030.
Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða.
7.Öldungaráð 2026-2030
Málsnúmer 202606128Vakta málsnúmer
Á 245. fundi fjölskylduráðs var eftirfarandi bókað:
Fjölskylduráð tilnefnir eftirfarandi í öldungaráð: Regína Sigurðarsdóttir , Kristjana Bergsdóttir og Kristín S. Gunnarsdóttir f.h. eldri borgara í Norðurþingi. Steinþór Þráinsson f.h. Þingeyjarsveitar, Jón Gíslason f.h. Langanesbyggðar, Smári Kárason f.h. Tjörneshrepps og Kristjana Lilja Einarsdóttir verður fulltrúi Heilbrigðisstofnunar Norðurlands. Deildarstjóri félagslegrar heimaþjónustu hjá Norðurþingi verður starfsmaður ráðsins.

Fyrirliggjandi tillaga fjölskylduráðs er samþykkt samhljóða og jafnframt tillaga Öldungaráðs um að Regína Sigurðardóttir verði formaður ráðsins.
8.Notendaráð fatlaðs fólks í Norðurþingi 2026-2030
Málsnúmer 202606127Vakta málsnúmer
Á 245. fundi fjölskylduráðs var eftirfarandi bókað:
Fjölskylduráð tilnefnir eftirfarandi í Notendaráð: Hermína Hreiðarsdóttir verður fulltrúi fyrir Einstök börn, Ásta Björk Aðalgeirsdóttir verður fulltrúi Einhverfusamtakanna, Dagný Þóra Gylfadóttir verður fulltrúi fyrir Hetjurnar - félag langveikra barna á Norðurlandi, fulltrúi minnihluta verður Ágúst Sigurður Óskarsson, fulltrúar meirihluta verða Andreas Blensner og Áslaug Guðfinna Friðfinnsdóttir. Kristjana Lilja Einarsdóttir, verkefnastjóri í heimahjúkrun verður fulltrúi Heilbrigðisstofnunar Norðurlands og Bryndís Edda Benediktsdóttir, verður fulltrúi þjónustuþega.
Rebekka vék af fundi undir þessum lið.

Fyrirliggjandi tillaga fjölskylduráðs er samþykkt samhljóða.
Rebekka Ásgeirsdóttir vék af fundi undir þessum lið.

9.Ósk um lóðarsamning vegna verkstæðishúss að Höfðabraut, Raufarhöfn
Málsnúmer 202609024Vakta málsnúmer
Á 243. fundi skipulags- og framkvæmdaráðs var eftirfarandi bókað: Skipulagsfulltrúa er falið að fullvinna lóðaruppdrátt á grunni fyrirliggjandi rissmyndar. Ráðið leggur til að lóðin fái heitið Höfðabraut 17. Ráðið leggur til við sveitarstjórn að gerður verði nýr lóðarsamningur við lóðarhafa á grunni fyrirliggjandi tillögu að afmörkun lóðarinnar.
Fyrirliggjandi tillaga skipulags- og framkvæmdaráðs er samþykkt samhljóða.
10.Fjölskylduráð - 245
Málsnúmer 2608005FVakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur fundargerð 245. fundar fjölskylduráðs.
Lagt fram til kynningar.
11.Fjölskylduráð - 246
Málsnúmer 2608010FVakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur fundargerð 246. fundar fjölskylduráðs.
Lagt fram til kynningar.
12.Skipulags- og framkvæmdaráð - 242
Málsnúmer 2608006FVakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur fundargerð 242. fundar skipulags- og framkvæmdaráðs.
Lagt fram til kynningar.
13.Skipulags- og framkvæmdaráð - 243
Málsnúmer 2608011FVakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur fundargerð 243. fundar skipulags- og framkvæmdaráðs.
Til máls tók undir lið 15 "Deiluskipulag iðnaðarsvæðis á Bakka - 3. áfangi": Helena.
Aðrir liðir fundargerðarinnar lagðir fram til kynningar.

14.Byggðarráð Norðurþings - 526
Málsnúmer 2608008FVakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur fundargerð 526. fundar byggðarráðs.
Lagt fram til kynningar.
15.Byggðarráð Norðurþings - 527
Málsnúmer 2608012FVakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur fundargerð 527. fundar byggðarráðs.
Til máls tóku undir lið 1 "Hálfsársuppgjör Norðurþings 2026": Ágúst, Bergþór og Aldey.
Aðrir liðir fundargerðarinnar lagðir fram til kynningar.
Aðrir liðir fundargerðarinnar lagðir fram til kynningar.
16.Orkuveita Húsavíkur ohf - 282
Málsnúmer 2609003FVakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur fundargerð 282. fundar stjórnar Orkuveitu Húsavíkur.
Til máls tóku undir lið 3 "Fráveitumál í Norðurþingi": Eysteinn og Aldey.
Aðrir liðir fundargerðarinnar lagðir fram til kynningar.
Aðrir liðir fundargerðarinnar lagðir fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 14:06.