Fara í efni

Álit sveitarstjórna á vindorkuhugmyndum sem er til umfjöllunar í 6. áfanga rammaáætlunar

Málsnúmer 202608162

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Norðurþings - 527. fundur - 10.09.2026

Fyrir byggðarráði liggur erindi þar sem óskað er eftir áliti sveitarstjórnar á vindorkuhugmyndum sem er til umfjöllunar í 6. áfanga rammaáætlunar.
Byggðarráð vísar málinu til afgreiðslu í sveitarstjórn.

Sveitarstjóra er falið að vinna drög að umsögn vegna erindisins sem verður til umfjöllunar á næsta fundi sveitarstjórnar.


Ómar Gunnarsson vék af fundi undir þessum lið.

Sveitarstjórn Norðurþings - 166. fundur - 17.09.2026

Á 527. fundi byggðarráðs var eftirfarandi bókað:
Fyrir byggðarráði liggur erindi þar sem óskað er eftir áliti sveitarstjórnar á vindorkuhugmyndum sem er til umfjöllunar í 6. áfanga rammaáætlunar. Byggðarráð vísar málinu til afgreiðslu í sveitarstjórn. Sveitarstjóra er falið að vinna drög að umsögn vegna erindisins sem verður til umfjöllunar á næsta fundi sveitarstjórnar.
Ómar Gunnarsson vék af fundi undir þessum lið.
Forseti leggur fram eftirfarandi tillögu að umsögn sveitarstjórnar:
Sveitarstjórn Norðurþings hefur ekki lýst yfir formlegri afstöðu til uppbyggingar vindorkuvers á Hnotasteini. Sveitarstjórn hefur samt sem áður unnið með fyrirtæki sem kannar möguleika á uppbyggingu vindorkuvers.Sveitarstjórn telur mikilvægt að við mat á virkjanahugmyndum Hnotasteins verði horft heildstætt til áhrifa þeirra á nærsamfélagið, bæði hvað varðar samfélagsleg, efnahagsleg og umhverfisleg áhrif þar sem um verkefnið eru skiptar skoðanir í nærsamfélaginu og innan sveitarstjórnar Norðurþings.
Sveitarstjórn leggur áherslu á að vandað samráð eigi sér stað við sveitarfélagið, íbúa og aðra hagaðila á öllum stigum verkefnisins. Gott upplýsingaflæði og virkt samráð eru mikilvægar forsendur þess að ólík sjónarmið komi fram og að unnt sé að vinna að sem mestri sátt um mögulegar framkvæmdir.
Sveitarstjórn telur mikilvægt að mögulegar framkvæmdir við vindorkuver á Hnotasteini skili nærsamfélaginu áþreifanlegum og varanlegum ávinningi. Þar ber meðal annars að horfa til tekna sveitarfélagsins, starfa við uppbyggingu og rekstur, verkefna fyrir fyrirtæki á svæðinu og uppbyggingar innviða sem nýtast samfélaginu til lengri tíma. Slík uppbygging getur jafnframt skapað forsendur fyrir fjölgun íbúa og frekari styrkingu þjónustu og samfélagslegra innviða.
Á móti þarf að leggja vandað mat á áhrif framkvæmda og reksturs á náttúru, landslag og nærumhverfi, þar á meðal sýnileika mannvirkja, hávaða og önnur skynræn áhrif. Mikilvægt er að leitast verði við að lágmarka neikvæð áhrif og að tekið sé tillit til sjónarmiða nærsamfélagsins við útfærslu verkefna.
Sveitarstjórn leggur að lokum áherslu á að orkuvinnsla og atvinnuuppbygging verði skoðuð í samhengi. Verði af aukinni orkuvinnslu á svæðinu er mikilvægt að hún skapi raunveruleg tækifæri til langtíma verðmætasköpunar, fjölgunar fjölbreyttra og verðmætra starfa og styrkingar byggðar í Norðurþingi og á Norðausturlandi.

Tillagan er samþykkt samhljóða.

Ómar Gunnarsson vék af fundi undir þessum lið.

Byggðarráð Norðurþings - 529. fundur - 06.10.2026

Fyrir byggðarráði liggur að taka upp fyrri umsögn sveitarstjórnar frá 166. fundi sem haldinn var 17. september sl.
Byggðarráð vísar málinu til afgreiðslu á næsta fundi sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn Norðurþings - 167. fundur - 15.10.2026

Á 529. fundi byggðarráðs var eftirfarandi bókað: Byggðarráð vísar málinu til afgreiðslu á næsta fundi sveitarstjórnar.
Til máls tóku: Helena, Rúnar, Eysteinn, Kjartan og Aldey.

Rúnar leggur fram eftirfarandi bókun:
Fulltrúar M-lista samfélagsins og V-lista velferðar í sveitarstjórn mótmæla þeim vinnubrögðum sem viðhöfð hafa verið í þessu máli. Þetta eru ófagleg og óvönduð vinnubrögð.
Ótilgreindur meirihluti sveitarstjórnar leggur fram umsögn í nafni sveitarstjórnar án umfjöllunar allra aðila í sveitarstjórn.
Við óskum eftir faglegri og agaðri vinnubrögðum í framtíðinni.
Rúnar Traustason og Aldey Unnar Traustadóttir

Aldey leggur fram eftirfarandi tillögu:
Vindorkuver á Hólaheiði er stórt inngrip í viðkvæmt og víðfeðmt landsvæði. Um er að ræða breytingu sem hefur áhrif á landslag, lífríki, upplifun og sjálfsmynd svæðisins til framtíðar. Slík ákvörðun verður ekki réttlætt eingöngu með tilvísun í aflgetu, flutningskerfi eða arðsemi fyrir orkufyrirtæki. Byggðaþróun, raforkuöryggi og atvinnuuppbygging eru mikilvæg markmið og þau verða að nást í sátt við náttúruvernd, varfærni og lýðræðislegt ferli.
Undirrituð telur mikilvægt að Norðurþing standi vörð um rammaáætlun sem ferli, virði hlutverk biðflokksins og láti faglegt mat, ekki pólitískan þrýsting eða skammtímahagsmuni, ráða ferðinni. Sveitarfélagið á að vera rödd ábyrgðar, ekki flýtileiðar fram hjá vönduðu mati á áhrifum sem munu móta svæðið um ókomna tíð.
Að því sögðu þá tel ég vera gríðarlega mikilvægt að ef sýn okkar er að byggja upp vindorkuver þá náist um það sem mest samfélagsleg sátt. Og hvernig getum við gert það. Fyrsta skrefið er að kanna hug íbúa á austursvæðinu til þessarar framkvæmdar.
Undirrituð leggur því til að lögð verði fyrir íbúakönnun í póstnúmerum 670, 671, 675 og 676 þar sem könnuð verði afstaða íbúa til Hnotasteins verkefnisins. Áður en sú könnun færi fram myndi sveitarfélagið standa fyrir kynningu á verkefninu og stöðu þess. Íbúar eiga rétt á möguleika til að taka upplýsta ákvörðun.

Tillaga Aldeyjar er felld með atkvæðum Eysteins, Helenu, Bylgju, Kjartans, Þorsteins og Agnieszku.
Aldey og Rúnar greiddu atkvæði með tillögunni.

Helena leggur fram eftirfarandi bókun:
Undirrituð telja að ríkt samráð sé haft við íbúa í gegnum formleg umsagnarferli tengd áformum um vindorkuver og að íbúakönnun sé þarf af leiðandi ekki þörf. Einnig má nefna að málið er nú opið til umsagna á tveimur stöðum annars vegar er skýrsla um mat á umhverfisáhrifum og hins vegar tillaga verkefnisstjórnar 6. áfanga rammaáætlunar til umsagnar um þessar mundir.
Helena Eydís Ingólfsdóttir D lista
Þorsteinn Snævar Benediktsson D lista
Kjartan Páll Þórarinsson S lista
Agnieszka Szczodrowska S lista
Eysteinn Heiðar Kristjánsson B lista
Bylgja Steingrímsdóttir B lista

Fyrirliggjandi drög að umsögn meirihluta sveitarstjórnar er samþykkt með atkvæðum Kjartans, Þorsteins, Bylgju, Eysteins og Helenu.
Aldey greiðir atkvæði á móti tillögunni.
Rúnar og Agnieszka sitja hjá.

Ómar vék af fundi undir þessum lið.