Byggðarráð Norðurþings
1.Samskipti vegna Hnotasteins
Málsnúmer 202406077Vakta málsnúmer
2.Þjóðarsátt um verðstöðugleika
Málsnúmer 202609126Vakta málsnúmer
SGS skorar á sveitarfélög landsins að taka þátt í sameiginlegu átaki til að ná niður verðbólgu og vöxtum og stuðla þannig að því að kjarasamningar haldi.
3.Rekstur Norðurþings 2026
Málsnúmer 202602009Vakta málsnúmer
4.Áætlanir vegna ársins 2027-2030
Málsnúmer 202609122Vakta málsnúmer
5.Þjónustustefna Norðurþings
Málsnúmer 202305116Vakta málsnúmer
6.Gjaldskrár Norðurþings 2027
Málsnúmer 202610013Vakta málsnúmer
Þessi ákvörðun er í samræmi við og í kjölfar þess að Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga samþykkti í lok september ályktun um að sveitarfélögin í landinu lýsi yfir vilja til að halda hækkunum almennra gjaldskráa innan 2,5% á árinu 2027.
Norðurþing vill með þessari ákvörðun leggja sitt af mörkum til að ná sameiginlegum markmiðum um lægri verðbólgu og vexti í landinu sem mun bæta hag heimila, fyrirtækja, sveitarfélaga og ríkis.
Það er ljóst að bæði ríki, sveitarfélög og aðrir hagaðilar þurfa að leggjast saman á árarnar svo að markmið um lækkun verðbólgu og vaxta náist.
7.Hraðið miðstöð nýsköpunar og þekkingar, samtal um áframhaldandi samstarf
Málsnúmer 202609123Vakta málsnúmer
Helena Eydís og Kjartan Páll véku af fundi undir þessum lið.
Þorsteinn Benediktsson varamaður sat fundinn undir þessum lið.
8.Fjölgun starfa sýslumanns í Norðurþingi
Málsnúmer 202610006Vakta málsnúmer
Í lögunum kemur fram að hið minnsta 65% starfa eigi að vera á landsbyggðinni og markmið laganna er meðal annars að fjölga störfum á landsbyggðinni og staðsetning starfsstöðva eigi að efla þjónustu á landsbyggðinni.
Kristín Þórðardóttir hefur verið skipuð nýr sýslumaður og tekur til starfa samkvæmt nýjum lögum 1. janúar 2027.
Starfsstöð sýslumanns er nú þegar á Húsavík og eru þar laus pláss fyrir allt að fjóra starfsmenn sem myndu styrkja enn frekar öfluga starfsstöð á Húsavík. Húsnæðið er í eigu ríkisins og vel búið í alla staði.
Í nýlegri skýrslu Byggðastofnunnar kemur fram að ríkisstörfum hefur fækkað í Norðurþingi frá árinu 2023 því er hér tækifæri til að snúa þeirri þróun við og nýta betur gott húsnæði í eigu ríkisins.
9.Starfshópur um rekstur Slökkviliðs Norðurþings
Málsnúmer 202608039Vakta málsnúmer
10.Álit sveitarstjórna á vindorkuhugmyndum sem er til umfjöllunar í 6. áfanga rammaáætlunar
Málsnúmer 202608162Vakta málsnúmer
11.Forgangsverkefni áfangastaðaáætlunnar Norðurlands
Málsnúmer 202609167Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggur að taka ákvörðun um hvort uppfæra eigi núverandi áfangastaðaáætlun sveitarfélagsins svo hún gefi sem gleggsta mynd af þeim verkefnum sem eru í gangi eða eru áformuð á hverjum tíma.
12.Erindi frá Kvennaathvarfinu vegna framlags 2027
Málsnúmer 202609165Vakta málsnúmer
13.Samtök landbúnaðarsveitarfélaga
Málsnúmer 202610007Vakta málsnúmer
Sveitarfélög sem hafa verulega beina hagsmuni af landbúnaði geta gerst stofnaðilar að samtökunum. Við mat á því skal meðal annars líta til umfangs landbúnaðarstarfsemi innan sveitarfélagsins, hlutfalls starfa í landbúnaði og tengdum greinum, sem og annarra þátta sem sýna fram á verulega hagsmuni sveitarfélagsins af málefnum landbúnaðar.
14.Ósk um stuðning við Flugklasann Air 66N
Málsnúmer 202609155Vakta málsnúmer
Í ljósi óvissu um framlög ríkisins er fjárhagslegur stuðningur sveitarfélaganna við Flugklasann enn nauðsynlegur. Markaðsstofa Norðurlands óskar því hér með eftir stuðningi ykkar sveitarfélags að upphæð 500 kr. á hvern íbúa á ári til næstu þriggja ára (2027-2029).
Vinsamlegast sendið
undirrituðum svar við þessu erindi þegar niðurstaða liggur fyrir.
15.Norðurþing 20 ára
Málsnúmer 202608142Vakta málsnúmer
16.Boð á haustþing SSNE 2026
Málsnúmer 202607027Vakta málsnúmer
17.Til umsagnar 66.mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis
Málsnúmer 202609170Vakta málsnúmer
Frestur til að senda inn umsögn er til og með 6. október nk.
18.Fundargerðir SSNE 2026
Málsnúmer 202601039Vakta málsnúmer
19.Fundargerðir Dvalarheimilis aldraðra sf.2026
Málsnúmer 202603113Vakta málsnúmer
20.Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026
Málsnúmer 202512097Vakta málsnúmer
21.Fundargerðir Samtaka orkusveitarfélaga 2026
Málsnúmer 202603130Vakta málsnúmer
22.Sala á eign
Málsnúmer 202503099Vakta málsnúmer
Fundi slitið - kl. 19:35.
Ómar Gunnarsson vék af fundi í málum nr. 1 og 10.
Eysteinn Heiðar Kristjánsson vék af fundi í máli nr. 9.
Eysteinn Heiðar Kristjánsson vék af fundi kl 18:36.