Samtök landbúnaðarsveitarfélaga
Málsnúmer 202610007
Vakta málsnúmerByggðarráð Norðurþings - 529. fundur - 06.10.2026
Boðað er til stofnfundar Samtaka landbúnaðarsveitarfélaga miðvikudaginn 7. október kl. 15:00-16:00 í sal á 2. hæð á Hilton Reykjavík.
Sveitarfélög sem hafa verulega beina hagsmuni af landbúnaði geta gerst stofnaðilar að samtökunum. Við mat á því skal meðal annars líta til umfangs landbúnaðarstarfsemi innan sveitarfélagsins, hlutfalls starfa í landbúnaði og tengdum greinum, sem og annarra þátta sem sýna fram á verulega hagsmuni sveitarfélagsins af málefnum landbúnaðar.

Byggðarráð samþykkir að vera stofnaðili að samtökunum og felur Bergþóri Bjarnasyni sveitarstjóra að mæta á fundinn f.h. sveitarfélagsins.