Fara í efni

Starfshópur um rekstur Slökkviliðs Norðurþings

Málsnúmer 202608039

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Norðurþings - 525. fundur - 13.08.2026

Fyrir byggðarráði liggur tillaga að stofnun starfshóp um rekstur Slökkviliðs Norðurþings
Byggðarráð felur sveitarstjóra að leggja fyrir ráðið á næsta fundi uppfært erindisbréf ásamt tilnefningum í starfshópinn.

Byggðarráð Norðurþings - 526. fundur - 27.08.2026

Á 525. fundi byggðarráðs var eftirfarandi bókað: Byggðarráð felur sveitarstjóra að leggja fyrir ráðið á næsta fundi uppfært erindisbréf ásamt tilnefningum í starfshópinn.
Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi erindisbréf og tilnefnir í starfshópinn Helenu Eydísi Ingólfsdóttur, Kjartan Pál Þórarinsson og Rúnar Traustason. Ásamt slökkviliðsstjóra Henning Þór Aðalmundssyni.

Byggðarráð Norðurþings - 528. fundur - 22.09.2026

Fyrir byggðarráði liggur kynning á stöðu mála hjá starfshópi sem stofnaður var til að endurskoða rekstur Slökkviliðs Norðurþings.
Byggðarráð þakkar starfshópnum fyrir kynningu á þeirri vinnu sem hefur þegar farið fram og felur sveitarstjóra að vinna með þá niðurstöðu sem þegar liggur fyrir.

Eysteinn vék af fundi undir þessum lið.

Byggðarráð Norðurþings - 529. fundur - 06.10.2026

Fyrir byggðarráði liggur að taka ákvörðun um framhald vinnu starfshóps um rekstur Slökkviliðs Norðurþings.
Byggðarráð felur sveitarstjóra að óska eftir því formlega að hefja viðræður um að Norðurþing taki við sjúkraflutningum HSN í Norðurþingi.