Byggðarráð Norðurþings
Dagskrá
1.Álagning gjalda 2027
Málsnúmer 202611005Vakta málsnúmer
Byggðarráð heldur áfram umræðu sinni um álagningu gjalda.
Byggðarráð heldur áfram umræðu sinni um álagningu gjalda á næsta fundi sínum.
2.Áætlanir vegna ársins 2027-2030
Málsnúmer 202609122Vakta málsnúmer
Byggðarráð heldur áfram umfjöllun sinni um fjárhagsáætlun Norðurþings.
Byggðarráð heldur áfram umfjöllun sinni um fjárhagsáætlun Norðurþings á næstu fundum ráðsins.
3.Starfshópur um rekstur Slökkviliðs Norðurþings
Málsnúmer 202608039Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggja niðurstöður starfshóps um slökkvilið Norðurþings og fundargerðir starfshópsins.
Byggðarráð mun halda áfram vinnu sinni við tillögur starfshópsins á næsta fundi sínum.
Eysteinn Heiðar vék af fundi undir þessum lið.
Eysteinn Heiðar vék af fundi undir þessum lið.
4.Athugasemdir vegna vindorkuvers að Hnotasteini
Málsnúmer 202611013Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggur erindi frá Elvari Árna Lund þar sem óskað er eftir að sveitarstjórn taki fyrirhuguð áform um vindorkuverk að Hnotasteini á Hólaheiði til sjálfstæðrar og gagnrýninnar skoðunar og endurmeti fyrri afstöðu sína.
Byggðarráð felur sveitarstjóra að undirbúa drög að svörum og leggja fyrir ráðið að nýju.
Ómar vék af fundi undir þessum lið.
Ómar vék af fundi undir þessum lið.
5.Mótun og innleiðing reglna um eftirfylgni og viðbrögð við frávikum fjárhagsáætlunar
Málsnúmer 202610074Vakta málsnúmer
Fyrir byggðaráð liggja drög að reglum um eftirfylgni og viðbrögð við frávikum fjárhagsáætlunar
Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi drög með áorðnum breytingum og vísar þeim til staðfestingar í sveitarstjórn.
6.Erindi til Norðurþings um heildstæða endurbóta- og viðhaldsáætlun fyrir Samkomuhúsið að Garðarsbraut
Málsnúmer 202608116Vakta málsnúmer
Á 247. fundi skipulags- og framkvæmdaráðs var eftirfarandi bókað:
Ráðið telur ekki skynsamlegt að ráðast í verulegar endurbætur á húsinu, þar sem viðhaldsþörf hússins og ástand þess myndi kalla á algera endurbyggingu. Ástand hússins, þar með talið burðavirki þess, er með þeim hætti að umfang endurbóta yrði verulegt og kostnaður mikill. Í skýrslunni kemur m.a. fram að gera megi ráð fyrir því að byggingin sé ójárnbent.
Ráðið leggur til að horft verði til framtíðar í þessu máli og að unnið verði að uppbyggingu menningarhúss í samráði við Leikfélag Húsavíkur og aðra notendur, þannig að tryggt verði að húsnæðið standist þær kröfur sem til þess eru gerðar og nýtist komandi kynslóðum sem mest.
Ráðið leggur til að hafin verði vinna við hönnun, að lokinni þarfagreiningu, árið 2028 og unnið verði áfram að verkefninu í fjárhagsáætlunum sveitarfélagsins í framhaldi.
Skipulags- og framkvæmdaráð vísar erindinu til byggðarráðs m.t.t. að málið verði á þriggja ára áætlun 2028-2030.
Ráðið telur ekki skynsamlegt að ráðast í verulegar endurbætur á húsinu, þar sem viðhaldsþörf hússins og ástand þess myndi kalla á algera endurbyggingu. Ástand hússins, þar með talið burðavirki þess, er með þeim hætti að umfang endurbóta yrði verulegt og kostnaður mikill. Í skýrslunni kemur m.a. fram að gera megi ráð fyrir því að byggingin sé ójárnbent.
Ráðið leggur til að horft verði til framtíðar í þessu máli og að unnið verði að uppbyggingu menningarhúss í samráði við Leikfélag Húsavíkur og aðra notendur, þannig að tryggt verði að húsnæðið standist þær kröfur sem til þess eru gerðar og nýtist komandi kynslóðum sem mest.
Ráðið leggur til að hafin verði vinna við hönnun, að lokinni þarfagreiningu, árið 2028 og unnið verði áfram að verkefninu í fjárhagsáætlunum sveitarfélagsins í framhaldi.
Skipulags- og framkvæmdaráð vísar erindinu til byggðarráðs m.t.t. að málið verði á þriggja ára áætlun 2028-2030.
Gert er ráð fyrir fjármagni í undirbúning og vinnu við hönnun og þarfagreiningu á næsta ári. Stefnt er að því að taka málið aftur upp við áætlunargerð haustið 2027.
7.Erindi frá tónlistarfélagi Húsavíkur
Málsnúmer 202611037Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggur erindi þar sem Tónlistarskóli Húsavíkur og Tónlistarfélag Húsavíkur óska eftir samráði við undirbúning nýs menningarhúss á Húsavík ásamt leikfélagi Húsavíkur og Norðurþingi.
Byggðarráð leggur áherslu á að gott samráð verði haft um málið við alla hagaðila.
Byggðarráð þakkar fyrir erindið og vísar í bókun við fundarlið 6.
Byggðarráð þakkar fyrir erindið og vísar í bókun við fundarlið 6.
8.Erindi frá þorrablótsnefnd Keldhverfunga
Málsnúmer 202611034Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggur styrkbeiðni frá þorrablótsnefnd Keldhverfunga vegna húsnæðiskostnaðar fyrir þorrablót 2027.
Byggðarráð felur sveitarstjóra að afla frekari upplýsinga um viðburðinn og leggja fyrir ráðið að nýju.
9.Völsungur - umsókn um styrk vegna 100 ára afmælis 2027
Málsnúmer 202611035Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggur umsókn Íþróttafélagsins Völsungs um styrk að fjárhæð 1.000.000 kr. vegna undirbúnings og framkvæmdar 100 ára afmælis félagsins árið 2027. Fyrirhugaðir eru fjölbreyttir viðburðir allt árið, auk sérstakrar afmælishátíðar í apríl.
Byggðarráð felur sveitarstjóra að vinna að málinu og leggja fyrir ráðið að nýju.
10.Ósk um tækifærisleyfi vegna afmælistónleika á Raufarhöfn
Málsnúmer 202611028Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggur umsagnarbeiðni vegna umsóknar um tækifærisleyfi frá Norðurþingi vegna afmælistónleika á Raufarhöfn.
Byggðarráð veitir jákvæða umsögn.
11.Ósk um tækifærisleyfi vegna afmælistónleika á Kópaskeri
Málsnúmer 202611027Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggur umsagnarbeiðni vegna umsóknar um tækifærisleyfi frá Norðurþingi vegna afmælistónleika á Kópaskeri.
Byggðarráð veitir jákvæða umsögn.
12.Flugeldasala Kiwanisklúbbsins Skjálfanda á Húsavík 2026
Málsnúmer 202611070Vakta málsnúmer
Kiwanisklúbburinn Skjálfandi óskar eftir umsögn sveitarfélagsins vegna flugeldasölu klúbbsins í kringum áramót og þrettánda.
Byggðarráð veitir jákvæða umsögn.
13.Fjárhagsáætlun HNE 2027
Málsnúmer 202611014Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggur fjárhagsáætlun HNE vegna ársins 2027.
Lagt fram til kynningar.
14.Fundargerðir HNE 2026
Málsnúmer 202603056Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggur fundargerð 252. fundar Heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra frá 30. október sl.
Lagt fram til kynningar.
15.Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026
Málsnúmer 202512097Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggur fundargerð 1005. fundar stjórnar Sambands Íslenskra sveitarfélaga frá 30. október sl.
Lagt fram til kynningar.
16.Fundargerðir stjórnar Markþings 2026
Málsnúmer 202603068Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggur 8. fundargerð stjórnar Markþings frá 11. nóvember sl.
Byggðarráð vísar lið 6 um Mærudaga úr 8. fundargerð Markþings til umfjöllunar í Fjölskylduráði. Fundargerð Markþings lögð fram.
17.Til umsagnar 313.mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis
Málsnúmer 202611056Vakta málsnúmer
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 313. mál Stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2027-2041.
Frestur til að senda inn umsögn er til og með 26. nóvember nk.
Frestur til að senda inn umsögn er til og með 26. nóvember nk.
Lagt fram til kynningar.
18.Til umsagnar 286.mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis
Málsnúmer 202611057Vakta málsnúmer
Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar 286. mál - Stefna og aðgerðaáætlun gegn fátækt barna til ársins 2031. Frestur til að senda inn umsögn er til og með 27. nóvember nk
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 10:45.