Fara í efni

Álagning gjalda 2027

Málsnúmer 202611005

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Norðurþings - 531. fundur - 05.11.2026

Fyrir byggðarráði liggur til umræðu og kynningar álagning gjalda vegna ársins 2027.
Sveitarstjóri leggur fram eftirfarandi tillögu um álagningu gjalda vegna fjárhagsáætlunar 2027 og þriggja ára áætlunar 2028-2030.

Útsvar 14,97%

Fasteignaskattur:
A flokkur 0,450%
B flokkur 1,32%
C flokkur 1,55%

Lóðaleiga 1 1,50%
Lóðaleiga 2 2,50%

Vatnsgjald:
A flokkur 0,040%
B flokkur 0,450%
C flokkur 0,450%

Fráveitugjald:
A flokkur 0,095%
B flokkur 0,275%
C flokkur 0,275%

Sorphirðugjald: Hækki til samræmis við gjaldskrár um 2,5%.


Ágúst leggur fram breytingartillögu:
Fulltrúi M-Lista Samfélagsins leggur til við Byggðarráð að hækkanir á fasteignagjöldum Norðurþings fyrir árið 2027 verði að hámarki 2,5% (að meðaltali). Þetta taki til fasteignaskatts, lóðaleigu, fráveitugjalda, vatnsskatts og sorpgjalda.
Útsvar verði óbreytt
14,97%






Álagningarstuðlar fasteignagjalda verði skv. eftirfarandi :




Fasteignaskattur:



A flokkur
0,4427%


B flokkur
1,2985%


C flokkur
1,5247%






Lóðaleiga 1
1,4756%


Lóðaleiga 2
2,4593%






Vatnsgjald:



A flokkur
0,3935%


B flokkur
0,4427%


C flokkur
0,4427%






Fráveitugjald:



A flokkur
0,0935%


B flokkur
0,2705%


C flokkur
0,2705%




Rökstuðningur

Það er mikilvægt að Norðurþing taki virkan þátt í sameiginlegu átaki samfélagsins að ná niður verðbólgu og skapa forsendur fyrir lægri vöxtum. Samband íslenskra sveitarfélaga f.h. sveitarfélaganna, atvinnulífið undir forystu Samtaka atvinnulífsins og verkalýðshreyfingin undir stjórn heildarsamtaka þeirra hafa mælt fyrir hóflegum hækkunum, að hámarki 2,5%.

Með því að hækka gjöld umfram þessi viðmið rýfur Norðurþing þá samstöðu í samfélaginu og leggur auknar byrðar á heimili og fyrirtæki sem hafa þegar tekið þátt í átakinu með hóflegum launahækkunum og aðhaldi í verðlagningu.

Norðurþing mun leggja að viðskiptavinum sínum og byrgjum að gæta hófs í gjaldskrá og verði á þjónustu. Því er mikilvægt að sveitarfélagið gangi fram með gott fordæmi og gefi skýran tón um þátttöku í þessu mikilvæga verkefni.

Hærri gjöld auka rekstrarkostnað fyrirtækja, draga úr ráðstöfunartekjum heimila og geta stuðlað að auknum verðbólguþrýstingi. Fyrirtæki hafa þegar gengið fram með góðu fordæmi og lýst yfir vilja til að halda gjaldskrám og þjónustu óbreyttum eða hækkanir verði mjög hóflegar. Íbúar Norðurþings og stéttarfélög þeirra hafa axlað ábyrgð með hóflegum kauphækkunum í þeirri trú að órofa samstaða verði um aðgerðirnar.

Aukinn kaup- og fjárfestamáttur íbúa og fyrirtækja styrkir rekstur Norðurþings hvað best.
Norðurþing hefur sjálft mikla hagsmuni af lægri verðbólgu og vöxtum, meðal annars vegna lægri fjármagnskostnaðar og bætts rekstrarumhverfis.

Sveitarfélagið á að sýna gott fordæmi, sýna aðhald í rekstri og leita hagræðingar áður en álögur á íbúa og atvinnulíf eru auknar umfram sameiginleg viðmið.

Ágúst Sigurður Óskarsson, M-Lista Samfélagsins.

Tillögu Ágústar er hafnað með atkvæðum Kjartans, Helenu og Aldeyjar.

Undirrituð óska bókað.

Fasteignamat í Norðurþingi hækkar að meðaltali um 4,2%. Breyting á álagningu á fasteignagjöld svo hækkun yrði að jafnaði 2,5% er tæknilega erfið í framkvæmd. Að auki mundi breytingin sem lögð er til skerða tekjur sveitarfélagsins með tvennum hætti, annars vegar fasteignagjöld og hins vegar framlög frá Jöfnunarsjóði.
Eigi að skerða tekjur sveitarfélagsins felur það jafnframt í sér að draga þarf úr útgjöldum frekar en orðið er. Það verður ekki gert án þess að komi til uppsagna og/eða frekari skerðingar á þjónustu.
Óbreytt álagning gjalda felur aftur á móti í sér að tekjur af fasteignagjöldum hækka um 4,2% og gerir sveitarfélaginu kleift að verja þjónustu og störf á vettvangi sveitarfélagsins.

Sveitarfélagið er í samkeppni við önnur sveitarfélög um íbúa. Lykilþættir í þeirri samkeppni eru m.a. þjónusta sveitarfélagsins í samanburði við önnur.

Undirrituð eru almennt hlynnt því að leitast við að lækka álagningu fasteignagjalda en þegar tekjur hafa lækkað eins og raunin er, teljum við ekki forsendur fyrir lækkun álagningar á þessum tímapunkti.

Helena Eydís Ingólfsdóttir, Sjálfstæðisflokki
Kjartan Páll Þórarinsson, Samfylkingu
Eysteinn Heiðar Kristjánsson, Framsóknarflokki
Ómar Gunnarsson, Óskalista
Aldey Unnar Traustadóttir, V lista velferðar

Byggðarráð vísar álagningu gjalda til umræðu í sveitarstjórn.