Mótun og innleiðing reglna um eftirfylgni og viðbrögð við frávikum fjárhagsáætlunar
Málsnúmer 202610074
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Norðurþings - 167. fundur - 15.10.2026
Fulltrúar meirihluta í sveitarstjórn leggja til að hafin verið vinna við mótun og undirbúning innleiðingar reglna um eftirfylgni og viðbrögð við frávikum fjárhagsáætlunar. Markmið með slíkum reglum og vinnulagi er að auka faglegan aga og eftirfylgni með því að skilgreina skýr viðbrögð ef útgjöld eða rekstur sveitarfélagsins víkja frá samþykktum áætlunum. Lagt er til að reglurnar verði tilbúnar til afgreiðslu á síðasta sveitarstjórnarfundi ársins og innleiddar samhliða fjárhagsáætlun ársins 2027.
Lagt er til að málinu sé vísað til byggðarráðs til úrvinnslu.
Helena Eydís Ingólfsdóttir D lista
Þorsteinn Snævar Benediktsson D lista
Kjartan Páll Þórarinsson S lista
Agnieszka Szczodrowska S lista
Eysteinn Heiðar Kristjánsson B lista
Bylgja Steingrímsdóttir B lista
Ómar Gunnarsson Ó lista
Lagt er til að málinu sé vísað til byggðarráðs til úrvinnslu.
Helena Eydís Ingólfsdóttir D lista
Þorsteinn Snævar Benediktsson D lista
Kjartan Páll Þórarinsson S lista
Agnieszka Szczodrowska S lista
Eysteinn Heiðar Kristjánsson B lista
Bylgja Steingrímsdóttir B lista
Ómar Gunnarsson Ó lista
Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða.