Byggðarráð Norðurþings
Dagskrá
Nanna Steina Höskuldsdóttir og Einar Ingi Einarsson atvinnu- og samfélagsfulltrúar sveitarfélagsins sátu fundinn í gegnum fjarfundarbúnað í lið 1).
1.Verkefnið Brothættar byggðir II
Málsnúmer 202511054Vakta málsnúmer
Á fund byggðarráðs koma Nanna Steina Höskuldsdóttir og Einar Ingi Einarsson og kynna verkefnið Brothættar byggðir. Verkefnið miðar að því að efla samfélagið með víðtæku samráði, virkja krafta íbúa og styðja við jákvæða byggðaþróun. Verkefnin eru tvö hér á okkar svæði: Raufarhöfn og framtíðin, og Öxarfjörður í sókn. Þetta tilraunaverkefni sem nú er í gangi snýr fyrst og fremst að styrkjaúthlutun, ráðgjöf og utanumhaldi þeirra.
Byggðarráð þakkar Nönnu Steinu og Einari Inga fyrir góða kynningu.
2.Áætlanir vegna ársins 2027-2030
Málsnúmer 202609122Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggur til umræðu fjárhagsáætlun vegna ársins 2027 og þriggja ára þar á eftir.
Byggðarráð heldur áfram umræðu um fjárhagsáætlun á næsta fundi sínum.
3.Mótun og innleiðing reglna um eftirfylgni og viðbrögð við frávikum fjárhagsáætlunar
Málsnúmer 202610074Vakta málsnúmer
Á 167. fundi sveitarstjórnar var eftirfarandi bókað: Fulltrúar meirihluta í sveitarstjórn leggja til að hafin verið vinna við mótun og undirbúning innleiðingar reglna um eftirfylgni og viðbrögð við frávikum fjárhagsáætlunar. Markmið með slíkum reglum og vinnulagi er að auka faglegan aga og eftirfylgni með því að skilgreina skýr viðbrögð ef útgjöld eða rekstur sveitarfélagsins víkja frá samþykktum áætlunum. Lagt er til að reglurnar verði tilbúnar til afgreiðslu á síðasta sveitarstjórnarfundi ársins og innleiddar samhliða fjárhagsáætlun ársins 2027. Lagt er til að málinu sé vísað til byggðarráðs til úrvinnslu. Helena Eydís Ingólfsdóttir D lista Þorsteinn Snævar Benediktsson D lista Kjartan Páll Þórarinsson S lista Agnieszka Szczodrowska S lista Eysteinn Heiðar Kristjánsson B lista Bylgja Steingrímsdóttir B lista Ómar Gunnarsson Ó lista.
Til máls tóku: Helena og Aldey. Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða.
Til máls tóku: Helena og Aldey. Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða.
Byggðarráð felur sveitarstjóra að vinna drög að reglum og leggja fyrir ráðið að nýju.
4.Tillaga verkefnisstjórnar rammaáætlunar um virkjanahugmyndir í verndarflokk og átta verndarsvæði
Málsnúmer 202609088Vakta málsnúmer
Verkefnisstjórn 6. áfanga rammaáætlunar hefur flokkað sjö vindorkuverkefni og sett tillögu sína ásamt skýrslu og fylgisskjölum í 12 vikna samráð í samráðsgátt stjórnvalda. Sjá hér: https://island.is/samradsgatt/mal/4349
Byggðarráð hvetur íbúa og hagaðila til að koma skoðunum sínum á framfæri inn á samráðsgátt.
Ómar vék af fundi undir þessum lið.
Ómar vék af fundi undir þessum lið.
5.Viðauki - kostnaður vegna umferðaröryggisáætlunar
Málsnúmer 202610063Vakta málsnúmer
Á 243. fundi skipulags- og framkvæmdaráðs var eftirfarandi bókað: Skipulags- og framkvæmdaráð felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að vinna viðauka að upphæð 4 m. kr. við gildandi fjárhagsáætlun og taka tilboði frá Eflu í verkið.
Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi viðauka að fjárhæð 4.000.000 kr. og vísar honum til afgreiðslu í sveitarstjórn Norðurþings.
6.Beiðni um framlag til starfsemi Stígamóta árið 2026
Málsnúmer 202610041Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggur ósk um fjárstuðning til starfsemi Stígamóta vegna ársins 2027.
Byggðarráð samþykkir að styrkja Stígamót um 130.000 kr. á árinu 2027.
7.Viðmið um sjálfbæra þróun sveitarfélaga
Málsnúmer 202610064Vakta málsnúmer
Innviðaráðuneytið hefur birt tillögur um viðmið um sjálfbæra þróun sveitarfélaga í samráðsgátt stjórnvalda til umsagnar. Í tillögunum eru sett fram 30 mælikvarðar og skilgreind viðmið sem gefa til kynna hvort sveitarfélög hafi nauðsynlegar forsendur til að þróast með sjálfbærum hætti til lengri tíma. Vonir standa til að viðmiðin og mælaborðið nýtist sem leiðsögn og tæki fyrir gagnadrifna stefnumótun og ákvarðanatöku fyrir sveitarfélög til langs tíma.
Hægt er að senda inn umsögn til og með 13. nóvember nk.
Hægt er að senda inn umsögn til og með 13. nóvember nk.
Lagt fram til kynningar.
8.Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026
Málsnúmer 202512097Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggur fundargerð 1003. fundar stjórnar Sambands Íslenskra sveitarfélaga frá 23. september sl.
Lagt fram til kynningar.
9.Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026
Málsnúmer 202512097Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggur fundargerð 1004. fundar stjórnar Sambands Íslenskra sveitarfélaga frá 8. október sl.
Lagt fram til kynningar.
10.Fundargerðir stjórnar Markþings 2026
Málsnúmer 202603068Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggur 7. fundargerð stjórnar Markþings frá 14. október sl.
Lagt fram til kynningar.
11.Fundargerðir Dvalarheimilis aldraðra sf.2026
Málsnúmer 202603113Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggur fundargerð frá stjórnarfundi DA sf. sem haldin var 12. október sl. ásamt fylgigögnum.
Lagt fram til kynningar.
12.Til umsagnar 156.mál frá nefnda- og greiningarsviði skrifstofu Alþingis
Málsnúmer 202610060Vakta málsnúmer
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 156. mál frumvarp til laga um breytingu á lögum um Byggðastofnun, nr. 106/1999 (lagfæringar). Frestur til að senda inn umsögn er til og með 22. október nk.
Lagt fram til kynningar.
13.Til umsagnar 88.mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis
Málsnúmer 202610087Vakta málsnúmer
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 88. mál tillaga til þingsályktunar um endurskoðun laga um sjávarflóðavarnir, ofanflóðavarnir og náttúruvá.
Frestur til að senda inn umsögn er til og með 27. október nk.
Frestur til að senda inn umsögn er til og með 27. október nk.
Lagt fram til kynningar.
14.Til umsagnar 59.mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis
Málsnúmer 202610089Vakta málsnúmer
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 59. máli frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum, nr. 138/2011 (fjöldi fulltrúa í sveitarstjórn).
Frestur til að senda inn umsögn er til og með 27. október nk.
Frestur til að senda inn umsögn er til og með 27. október nk.
Lagt fram til kynningar.
15.Til umsagnar 202.mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis
Málsnúmer 202610100Vakta málsnúmer
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 202. mál, Loftslagslög. Frestur til að senda inn umsögn er til og með 29. október nk.
Byggðarráð felur sveitarstjóra að skila inn umsögn.
Fundi slitið - kl. 10:06.