Verkefnið Brothættarbyggðir II
Málsnúmer 202511054
Vakta málsnúmerByggðarráð Norðurþings - 510. fundur - 27.11.2025
Á fund byggðarráðs koma Nanna Steina og Einar Ingi sem kynna stöðu á verkefninu Brothættarbyggðir II sem er í gangi á svæðinu austan Tjörnes.
Byggðarráð þakkar þeim Nönnu Steinu og Einari Inga fyrir góða kynningu og umræður.
Byggðarráð Norðurþings - 519. fundur - 09.04.2026
Fyrir byggðarráði liggja upplýsingar um úthlutun úr frumkvæðissjóði Raufarhafnar og framtíðarinnar II og Öxarfjarðar í sókn II. Úthlutunarhátíð fór fram á Raufarhöfn 30. mars sl.
Einnig til kynningar niðurstöður úr viðhorfskönnun íbúa á Raufarhöfn og austur-Sléttu og í Öxarfjarðarhéraði þar sem metinn er árangur af verkefninu Brothættar byggðir. Könnunin var lögð fyrir í apríl 2025 í upphafi verkefnisins brothættar byggðir II.

Lagt fram til kynningar.
Byggðarráð Norðurþings - 530. fundur - 22.10.2026
Á fund byggðarráðs koma Nanna Steina Höskuldsdóttir og Einar Ingi Einarsson og kynna verkefnið Brothættar byggðir. Verkefnið miðar að því að efla samfélagið með víðtæku samráði, virkja krafta íbúa og styðja við jákvæða byggðaþróun. Verkefnin eru tvö hér á okkar svæði: Raufarhöfn og framtíðin, og Öxarfjörður í sókn. Þetta tilraunaverkefni sem nú er í gangi snýr fyrst og fremst að styrkjaúthlutun, ráðgjöf og utanumhaldi þeirra.
Byggðarráð þakkar Nönnu Steinu og Einari Inga fyrir góða kynningu.