Sveitarstjórn Norðurþings
Dagskrá
1.Mótun og innleiðing reglna um eftirfylgni og viðbrögð við frávikum fjárhagsáætlunar
Málsnúmer 202610074Vakta málsnúmer
Fulltrúar meirihluta í sveitarstjórn leggja til að hafin verið vinna við mótun og undirbúning innleiðingar reglna um eftirfylgni og viðbrögð við frávikum fjárhagsáætlunar. Markmið með slíkum reglum og vinnulagi er að auka faglegan aga og eftirfylgni með því að skilgreina skýr viðbrögð ef útgjöld eða rekstur sveitarfélagsins víkja frá samþykktum áætlunum. Lagt er til að reglurnar verði tilbúnar til afgreiðslu á síðasta sveitarstjórnarfundi ársins og innleiddar samhliða fjárhagsáætlun ársins 2027.
Lagt er til að málinu sé vísað til byggðarráðs til úrvinnslu.
Helena Eydís Ingólfsdóttir D lista
Þorsteinn Snævar Benediktsson D lista
Kjartan Páll Þórarinsson S lista
Agnieszka Szczodrowska S lista
Eysteinn Heiðar Kristjánsson B lista
Bylgja Steingrímsdóttir B lista
Ómar Gunnarsson Ó lista

2.Álit sveitarstjórna á vindorkuhugmyndum sem er til umfjöllunar í 6. áfanga rammaáætlunar
Málsnúmer 202608162Vakta málsnúmer
Á 529. fundi byggðarráðs var eftirfarandi bókað: Byggðarráð vísar málinu til afgreiðslu á næsta fundi sveitarstjórnar.
Til máls tóku: Helena, Rúnar, Eysteinn, Kjartan og Aldey.
Rúnar leggur fram eftirfarandi bókun:
Fulltrúar M-lista samfélagsins og V-lista velferðar í sveitarstjórn mótmæla þeim vinnubrögðum sem viðhöfð hafa verið í þessu máli. Þetta eru ófagleg og óvönduð vinnubrögð.
Ótilgreindur meirihluti sveitarstjórnar leggur fram umsögn í nafni sveitarstjórnar án umfjöllunar allra aðila í sveitarstjórn.
Við óskum eftir faglegri og agaðri vinnubrögðum í framtíðinni.
Rúnar Traustason og Aldey Unnar Traustadóttir
Aldey leggur fram eftirfarandi tillögu:
Vindorkuver á Hólaheiði er stórt inngrip í viðkvæmt og víðfeðmt landsvæði. Um er að ræða breytingu sem hefur áhrif á landslag, lífríki, upplifun og sjálfsmynd svæðisins til framtíðar. Slík ákvörðun verður ekki réttlætt eingöngu með tilvísun í aflgetu, flutningskerfi eða arðsemi fyrir orkufyrirtæki. Byggðaþróun, raforkuöryggi og atvinnuuppbygging eru mikilvæg markmið og þau verða að nást í sátt við náttúruvernd, varfærni og lýðræðislegt ferli.
Undirrituð telur mikilvægt að Norðurþing standi vörð um rammaáætlun sem ferli, virði hlutverk biðflokksins og láti faglegt mat, ekki pólitískan þrýsting eða skammtímahagsmuni, ráða ferðinni. Sveitarfélagið á að vera rödd ábyrgðar, ekki flýtileiðar fram hjá vönduðu mati á áhrifum sem munu móta svæðið um ókomna tíð.
Að því sögðu þá tel ég vera gríðarlega mikilvægt að ef sýn okkar er að byggja upp vindorkuver þá náist um það sem mest samfélagsleg sátt. Og hvernig getum við gert það. Fyrsta skrefið er að kanna hug íbúa á austursvæðinu til þessarar framkvæmdar.
Undirrituð leggur því til að lögð verði fyrir íbúakönnun í póstnúmerum 670, 671, 675 og 676 þar sem könnuð verði afstaða íbúa til Hnotasteins verkefnisins. Áður en sú könnun færi fram myndi sveitarfélagið standa fyrir kynningu á verkefninu og stöðu þess. Íbúar eiga rétt á möguleika til að taka upplýsta ákvörðun.
Tillaga Aldeyjar er felld með atkvæðum Eysteins, Helenu, Bylgju, Kjartans, Þorsteins og Agnieszku.
Aldey og Rúnar greiddu atkvæði með tillögunni.
Helena leggur fram eftirfarandi bókun:
Undirrituð telja að ríkt samráð sé haft við íbúa í gegnum formleg umsagnarferli tengd áformum um vindorkuver og að íbúakönnun sé þarf af leiðandi ekki þörf. Einnig má nefna að málið er nú opið til umsagna á tveimur stöðum annars vegar er skýrsla um mat á umhverfisáhrifum og hins vegar tillaga verkefnisstjórnar 6. áfanga rammaáætlunar til umsagnar um þessar mundir.
Helena Eydís Ingólfsdóttir D lista
Þorsteinn Snævar Benediktsson D lista
Kjartan Páll Þórarinsson S lista
Agnieszka Szczodrowska S lista
Eysteinn Heiðar Kristjánsson B lista
Bylgja Steingrímsdóttir B lista
Fyrirliggjandi drög að umsögn meirihluta sveitarstjórnar er samþykkt með atkvæðum Kjartans, Þorsteins, Bylgju, Eysteins og Helenu.
Aldey greiðir atkvæði á móti tillögunni.
Rúnar og Agnieszka sitja hjá.
Ómar vék af fundi undir þessum lið.

3.Heimgreiðslur til foreldra barna á leikskólaaldri
Málsnúmer 202306085Vakta málsnúmer
Á 248. fundi fjölskylduráðs var eftirfarandi bókað:
Fjölskylduráð felur fræðslufulltrúa að uppfæra reglurnar í samræmi við umræður á fundinum. Reglurnar verða endurskoðaðar í vinnu starfshóps um endurskoðun leikskólagjalda og fyrirkomulag leikskólaþjónustu.

Til máls tók: Helena.
Fyrirliggjandi reglur samþykktar samhljóða.

4.Ósk um stofnun lóðar úr landi Meiðavalla
Málsnúmer 202609173Vakta málsnúmer
Margrét Hjálmarsdóttir merkjalýsandi, f.h. Ágústu Ágústsdóttir jarðareiganda, óskar samþykkis Norðurþings fyrir stofnun lóðar úr landi Meiðavalla. Lóðin er 62.139 m² að flatarmáli. Með erindi fylgja drög að merkjalýsingu sem innifelur teikningu af fyrirhugaðri lóð og hnitsetningu lóðarmarka. Jafnframt er þess óskað að ný lóð fái heitið Meiðavellir 2.
Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða.
5.Fjölskylduráð - 247
Málsnúmer 2609010FVakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur fundargerð 247. fundar fjölskylduráðs.
Lagt fram til kynningar.
6.Fjölskylduráð - 248
Málsnúmer 2609016FVakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur fundargerð 248. fundar fjölskylduráðs.
Lagt fram til kynningar.
7.Fjölskylduráð - 249
Málsnúmer 2609021FVakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur fundargerð 249. fundar fjölskylduráðs.
Lagt fram til kynningar.
8.Skipulags- og framkvæmdaráð - 244
Málsnúmer 2609011FVakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur fundargerð 244. fundar skipulags- og framkvæmdaráðs.
Lagt fram til kynningar.
9.Byggðarráð Norðurþings - 528
Málsnúmer 2609012FVakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur fundargerð 528. fundar byggðarráðs.
Lagt fram til kynningar.
10.Byggðarráð Norðurþings - 529
Málsnúmer 2609019FVakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur fundargerð 529. fundar byggðarráðs.
Til máls tóku undir lið 8 "Fjölgun starfa sýslumanns á Norðurlandi": Kjartan og Aldey.
Kjartan leggur fram eftirfarandi bókun:
Sveitarstjórn Norðurþings skorar á Sýslumann Íslands að fjölga starfsmönnum embættisins í Norðurþingi. Góðir fjarvinnuklasar eru á Kópaskeri og á Raufarhöfn, og nú þegar er Sýslumaður með öfluga og vel búna starfsstöð á Húsavík sem býr yfir svigrúmi til að fjölga starfsfólki þegar í stað.
Norðurþing er framsækið sveitarfélag sem er stöðugt í leit að nýjum verkefnum og tækifærum. Með fjölgun starfa sýslumanns í Norðurþingi verða til aukin atvinnutækifæri í héraði, opinber þjónusta í Þingeyjarsýslum eflist og aðgengi að þjónustu sýslumanns verður betri óháð búsetu.

11.Stjórn Hafnasjóðs Norðurþings - 46
Málsnúmer 2609009FVakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur fundargerð 46. fundar stjórnar hafnasjóðs Norðurþings.
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 14:29.