Fyrir sveitarstjórn liggur fundargerð 529. fundar byggðarráðs.
Til máls tóku undir lið 8 "Fjölgun starfa sýslumanns á Norðurlandi": Kjartan og Aldey. Kjartan leggur fram eftirfarandi bókun: Sveitarstjórn Norðurþings skorar á Sýslumann Íslands að fjölga starfsmönnum embættisins í Norðurþingi. Góðir fjarvinnuklasar eru á Kópaskeri og á Raufarhöfn, og nú þegar er Sýslumaður með öfluga og vel búna starfsstöð á Húsavík sem býr yfir svigrúmi til að fjölga starfsfólki þegar í stað. Norðurþing er framsækið sveitarfélag sem er stöðugt í leit að nýjum verkefnum og tækifærum. Með fjölgun starfa sýslumanns í Norðurþingi verða til aukin atvinnutækifæri í héraði, opinber þjónusta í Þingeyjarsýslum eflist og aðgengi að þjónustu sýslumanns verður betri óháð búsetu.
Kjartan leggur fram eftirfarandi bókun:
Sveitarstjórn Norðurþings skorar á Sýslumann Íslands að fjölga starfsmönnum embættisins í Norðurþingi. Góðir fjarvinnuklasar eru á Kópaskeri og á Raufarhöfn, og nú þegar er Sýslumaður með öfluga og vel búna starfsstöð á Húsavík sem býr yfir svigrúmi til að fjölga starfsfólki þegar í stað.
Norðurþing er framsækið sveitarfélag sem er stöðugt í leit að nýjum verkefnum og tækifærum. Með fjölgun starfa sýslumanns í Norðurþingi verða til aukin atvinnutækifæri í héraði, opinber þjónusta í Þingeyjarsýslum eflist og aðgengi að þjónustu sýslumanns verður betri óháð búsetu.