Byggðarráð Norðurþings
Dagskrá
1.Ráðning fjármálastjóra
Málsnúmer 202606077Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggja upplýsingar um mat á hæfni umsækjanda um starf fjármálastjóra Norðurþings frá Mögnum ráðningarþjónustu.
2.Rekstur Norðurþings 2026
Málsnúmer 202602009Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggja útsvarstekjur og fleira tengt rekstri.
Lagt fram til kynningar.
3.Sala á eign
Málsnúmer 202503099Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggur bókun frá fundi húsnæðisnefndar frá 7. ágúst sl.
Biðlisti er eftir félagslegu leiguhúsnæði n.t.t. eftir 2-3 herbergja íbúðum. Lausar til úthlutunar eru þrjár 3-4 herbergja íbúðir þar af ein í söluferli. Er það mat húsnæðisnefndar að eftirspurn sé fremur eftir minna húsnæði og minni íbúðum, sérstaklega á jarðhæð með góðu aðgengi. Út frá biðlista og með vísan í eftirspurn leggja starfsmenn nefndarinnar til að skoðað verði að hefja söluferli á 3-4 herberja íbúðunum 2 til viðbótar við þá sem þegar er í söluferli og athuga kaup á minni íbúðum í staðinn sem henta betur sem félagslegar leiguíbúðir og hafa betra aðgengi.

Byggðarráð heimilar að eignirnar Grundargarður 7 íbúð 304, F2152763 og
Grundargarður 9 íbúð 203, F2152780 verði settar á sölu.
Grundargarður 9 íbúð 203, F2152780 verði settar á sölu.
4.Starfshópur um rekstur Slökkviliðs Norðurþings
Málsnúmer 202608039Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggur tillaga að stofnun starfshóp um rekstur Slökkviliðs Norðurþings
Byggðarráð felur sveitarstjóra að leggja fyrir ráðið á næsta fundi uppfært erindisbréf ásamt tilnefningum í starfshópinn.
5.Nemendafélag Framhaldsskólans á Laugum óskar eftir stuðning við Tónkvíslina 2026
Málsnúmer 202608003Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggur beiðni um styrk vegna Tónkvíslar 2026.
Byggðarráð samþykkir að styrkja Tónkvíslina um 100 þ.kr eins og árið áður.
6.Aðalfundur Samtaka orkusveitarfélaga 2026
Málsnúmer 202608034Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggur fundarboð á aðalfund Samtaka orkusveitarfélaga verður haldinn á skrifstofu Sambands íslenskra sveitarfélaga, Borgartúni 30, föstudaginn 21. ágúst nk. kl.13:00. Í framhaldi af honum efna samtökin til Orkufundar sem áformað er að hefjist klukkan 14:30.
Byggðarráð tilnefnir Bergþór Bjarnason sveitarstjóra sem fulltrúa Norðurþings á fundinum og Eystein Kristjánsson til setu fundinum.
7.Hvítbók um byggðamál
Málsnúmer 202607056Vakta málsnúmer
Vinna við endurskoðunina hófst haustið 2025 og grænbók, sem felur í sér stöðumat og greiningu á helstu áskorunum og tækifærum í málaflokknum, var lögð fram í samráðsgátt stjórnvalda í lok janúar 2026. Víðtækt samráð hefur verið viðhaft við endurskoðun byggðaáætlunar. Í hvítbókinni eru lagðar fram tillögur að 41 aðgerð. Aðgerðirnar eru fjölbreyttar snerta málefnasvið allra ráðuneyta.
Byggðarráð felur sveitarstjóra að skila inn umsögn í samráði við fulltrúa byggðarráðs.
8.Breytingar á reglugerðum vegna einföldunar eftirlits
Málsnúmer 202608044Vakta málsnúmer
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynnir til samráðs drög að breytingum á ýmsum reglugerðum á sviði hollustuhátta og mengunarvarna í kjölfar nýsamþykktra laga um einföldun eftirlits.
Byggðarráð felur sveitarstjóra að skila inn umsögn í samráði við fulltrúa byggðarráðs.
9.Landsþing 2026
Málsnúmer 202602015Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggur boð vegna Landsþings sambands íslenskra sveitarfélaga.
Lagt fram til kynningar.
Fulltrúar Norðurþings á þinginu eru Aldey Unnar Traustadóttir, Helena Eydís Ingólfsdóttir og Kjartan Páll Þórarinsson.
Fulltrúar Norðurþings á þinginu eru Aldey Unnar Traustadóttir, Helena Eydís Ingólfsdóttir og Kjartan Páll Þórarinsson.
10.Fundargerðir HNE 2026
Málsnúmer 202603056Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggur fundargerð 250. fundar Heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra frá 30. júlí sl.
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 10:15.
Rúnar Traustason vék af fundi undir þessum lið.