Ráðning fjármálastjóra
Málsnúmer 202606077
Vakta málsnúmerByggðarráð Norðurþings - 522. fundur - 25.06.2026
Fyrir byggðarráði liggja tillögur að ráðningarferli fjármálstjóra Norðurþings.
Byggðarráð felur sveitarstjóra að semja við Mögnum ráðningar um verkefnið og leggja málið fyrir ráðið á næsta fundi.
Byggðarráð Norðurþings - 523. fundur - 09.07.2026
Fyrir byggðarráði liggja drög að auglýsingu í starf fjármálastjóra Norðurþings.
Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi drög að auglýsingu um starfið og felur sveitarstjóra að auglýsa starfið.
Byggðarráð Norðurþings - 525. fundur - 13.08.2026
Fyrir byggðarráði liggja upplýsingar um mat á hæfni umsækjanda um starf fjármálastjóra Norðurþings frá Mögnum ráðningarþjónustu.
Byggðarráð felur sveitarstjóra að ganga til samninga við hæfasta umsækjandann.
Rúnar Traustason vék af fundi undir þessum lið.
Rúnar Traustason vék af fundi undir þessum lið.