Fara í efni

Hraðið miðstöð nýsköpunar og þekkingar, samtal um áframhaldandi samstarf

Málsnúmer 202609123

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Norðurþings - 528. fundur - 22.09.2026

Á fund byggðarráðs mæta fulltrúar frá Þekkingarneti Þingeyinga til að ræða áframhaldandi samstarf um Hraðið og Fab Lab Húsavík.
Byggðarráð þakkar fulltrúum frá Þekkingarneti Þingeyinga fyrir góða kynningu og komuna á fundinn.
Ráðið mun vinna að framlengingu á þeim samningum sem eru að renna út á milli Norðurþings, Hraðsins og Fab Lab. Sveitarstjóra falið að vinna að uppfærslu á samningum og leggja þá fyrir ráðið samhliða vinnu við fjárhagsáætlun.