Fara í efni

Forgangsverkefni áfangastaðaáætlunnar Norðurlands

Málsnúmer 202609167

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Norðurþings - 529. fundur - 06.10.2026

Markaðsstofa Norðurlands óskar eftir uppfærðum upplýsingum frá sveitarfélögum varðandi hvaða verkefni forsvarsaðilar þeirra vilja setja í forgang við frekari uppbyggingu áfangastaða í heimabyggð.
Fyrir byggðarráði liggur að taka ákvörðun um hvort uppfæra eigi núverandi áfangastaðaáætlun sveitarfélagsins svo hún gefi sem gleggsta mynd af þeim verkefnum sem eru í gangi eða eru áformuð á hverjum tíma.
Byggðarráð samþykkir að vinna áfram með núverandi áfangastaðaáætlun sveitarfélagsins.