Fjölgun starfa sýslumanns í Norðurþingi
Málsnúmer 202610006
Vakta málsnúmerByggðarráð Norðurþings - 529. fundur - 06.10.2026
Byggðarráð vill vekja athygli á lögum um sýslumann númer 9/2026 sem samþykkt voru á Alþingi í febrúar.
Í lögunum kemur fram að hið minnsta 65% starfa eigi að vera á landsbyggðinni og markmið laganna er meðal annars að fjölga störfum á landsbyggðinni og staðsetning starfsstöðva eigi að efla þjónustu á landsbyggðinni.
Kristín Þórðardóttir hefur verið skipuð nýr sýslumaður og tekur til starfa samkvæmt nýjum lögum 1. janúar 2027.

Starfsstöð sýslumanns er nú þegar á Húsavík og eru þar laus pláss fyrir allt að fjóra starfsmenn sem myndu styrkja enn frekar öfluga starfsstöð á Húsavík. Húsnæðið er í eigu ríkisins og vel búið í alla staði.
Í nýlegri skýrslu Byggðastofnunnar kemur fram að ríkisstörfum hefur fækkað í Norðurþingi frá árinu 2023 því er hér tækifæri til að snúa þeirri þróun við og nýta betur gott húsnæði í eigu ríkisins.