Fara í efni

Byggðarráð Norðurþings

527. fundur 10. september 2026 kl. 08:30 - 10:50 í fundarsal GB5
Nefndarmenn
  • Kjartan Páll Þórarinsson formaður
  • Helena Eydís Ingólfsdóttir varaformaður
  • Aldey Unnar Traustadóttir aðalmaður
  • Eysteinn Heiðar Kristjánsson áheyrnarfulltrúi
  • Rúnar Traustason áheyrnarfulltrúi
  • Ómar Gunnarsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Bergþór Bjarnason sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Bergþór Bjarnason Sveitarstjóri
Dagskrá

1.Hálfsársuppgjör Norðurþings 2026

Málsnúmer 202608182Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur árshlutayfirlit sveitarfélagsins Norðurþings.
Fyrir liggur 6 mánaða uppgjör Norðurþings vegna ársins 2026 og var það kynnt byggðarráði þann 10. september 2026.

Árshlutareikningurinn fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2026 er óendurskoðaður og ókannaður.

Árshlutareikningurinn sýnir að fjárhagsstaða Norðurþings byggir á traustum grunni en óhagstætt ytraumhverfi og áhrif lokunar PCC Bakka koma inn af fullum þunga á þessu tímabili og lita reksturinn mjög á tímabilinu.

Halli af rekstri A hluta á tímabilinu nam 404 milljónum króna á móti 232 milljón króna halla á sama tíma í fyrra, en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir 71,1 milljóna króna rekstrarafgangi.
Breyting á lífeyrisskuldbindingu A hluta er 265 milljónir króna á móti 307milljónum króna á síðasta ári og það er þung skuldbinding fyrir sveitarsjóð.
Halli af rekstri samstæðunnar nam 517 milljónum króna á móti 272 milljón króna halla á sama tíma í fyrra, en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir 29 milljóna króna hagnaði.
Veltufé frá rekstri A hluta nemur 26 milljónum króna og veltufé frá rekstri samstæðunnar í heild nemur 72 milljónum króna eða um 2,5% af tekjum.
Handbært fé A hluta er 668 milljónir króna og handbært fé samstæðunnar í heild nemur 1.180 milljónum króna í lok tímabils.
Heildareignir samstæðunnar nema í lok tímabilsins 12.816 milljónum króna og eigið fé samstæðunnar nemur 4.010 milljónum króna.

Lagt fram til kynningar.

2.Rekstur Norðurþings 2026

Málsnúmer 202602009Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggja lykiltölur í rekstri Norðurþings.
Sveitarstjóri fór yfir lykiltölur í rekstri sveitarfélagsins.

Lagt fram til kynningar.

3.Tillaga að uppbyggingu skíðasvæðis í Reyðarárhnjúk Skíðasvæði Húsavíkur

Málsnúmer 202608181Vakta málsnúmer

Undirritaður leggur til að sett verði inn á þriggja ára fjárhags- og fjárfestingaáætlun 2028-2030 uppbygging á skíðasvæðinu í Reyðarárhnjúk.
Mikið og öflugt frumkvöðlastarf fór fram árið 2019 við að flytja skíðasvæðið við Húsavík upp í Reyðarárhnjúk og mikilvægt er að halda áfram þeirri uppbyggingu.
Það styður við og styrkir sveitarfélagið sem heilsueflandi samfélag og getur verið mikilvægur þáttur í að efla Norðurþing sem áfangastað yfir vetrarmánuðina.
Hönnunarskýrsla fyrir svæðið var gerð af SE Group árið 2023 en það á eftir að klára deiliskipulag fyrir svæðið.
Undirritaður leggur til að málinu verði vísað til skipulags- og framkvæmdaráðs til úrvinnslu.

Rúnar Traustason
Byggðarráð samþykkir tillögu Rúnars og vísar málinu til vinnu við fjárfestingaráætlun 2027-2031 hjá skipulags- og framkvæmdaráði og fjölskylduráði.

4.Erindi til Norðurþings varðandi frágang á götu við Auðbrekku 6

Málsnúmer 202608183Vakta málsnúmer

Erindi til sveitarfélagsins Norðurþings er varðar frágang á götu frá núverandi malbiksenda við Auðbrekku 6 upp fyrir gatnamót hjúkrunarheimils.
Byggðarráð þakkar fyrir erindið og vekur athygli á því að það hefur ekki breyst frá upphaflegri kynningu á verkefninu að frágangur verði sem bestur á svæðinu.

Ráðið felur sveitarstjóra að svara erindinu.

5.Bréf frá nemendum á Grænuvöllum

Málsnúmer 202609050Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur bréf frá nemendum á Árholti, elstu deildinni á leikskólanum Grænuvöllum.
Byggðarráð þakkar börnunum á Árholti fyrir frumkvæðið og metnaðinn sem þau sýndu með erindinu. Markmiðið er að bæta aðstöðuna á leikskólalóðinni og gera leiktækin örugg og skemmtileg fyrir börnin sem allra fyrst.

Ráðið vísar erindinu til skipulags- og framkvæmdaráðs og fjölskylduráðs.

6.Möguleg sala ríkisins á húsnæði á Aðaldalsflugvelli

Málsnúmer 202609055Vakta málsnúmer

Í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2027 er að finna heimild til sölu á flugstöð Húsavíkurflugvallar í Aðaldal. Byggðarráð hefur söluheimildina til umfjöllunar.
Á uppbyggingartíma Þeistareykjavirkjunar og iðnaðarsvæðisins á Bakka sköpuðust aðstæður fyrir áætlunarflug á Húsavíkuflugvöll á markaðsforsendum. Sveitarfélagið vinnur hörðum höndum að uppbyggingu iðnaðarsvæðisins á Bakka í samvinnu við ríkið.

Ráðinu hugnast ekki áform um sölu flugstöðvarinnar vegna hlutverks vallarins m.a. í sjúkraflugi og vegna áforma um atvinnuuppbyggingu. Þrátt fyrir að áætlunarflug fari ekki um völlinn sem stendur er nokkur umferð um völlinn vegna einkaflugs m.a. aðila sem kanna aðstæður á svæðinu til atvinnuuppbyggingar.

Byggðarráð felur sveitartjóra að koma á fundi með fjármálaráðherra vegna áforma ríkisins um sölu á flugstöð Húsavíkurflugvallar í Aðaldal.

7.Fundadagskrá byggðarráðs 2026

Málsnúmer 202609052Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur fundardagskrá ráðsins til áramóta.
Lagt fram til kynningar.

8.Álit sveitarstjórna á vindorkuhugmyndum sem er til umfjöllunar í 6. áfanga rammaáætlunar

Málsnúmer 202608162Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur erindi þar sem óskað er eftir áliti sveitarstjórnar á vindorkuhugmyndum sem er til umfjöllunar í 6. áfanga rammaáætlunar.
Byggðarráð vísar málinu til afgreiðslu í sveitarstjórn.

Sveitarstjóra er falið að vinna drög að umsögn vegna erindisins sem verður til umfjöllunar á næsta fundi sveitarstjórnar.


Ómar Gunnarsson vék af fundi undir þessum lið.

9.Erindi er varðar 16. gr. laga nr. 55/1992

Málsnúmer 202509059Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur erindi frá Náttúruhamfaratryggingu Íslands þar sem vakin er athygli á áhrifum 16. gr. laga nr. 55/1992 ef byggingar eru reistar á svæðum sem fyrir fram er vitað að eru sérlega næm fyrir náttúruhamförum sem eru bótaskyldar hjá NTÍ.
Byggðarráð vísar málinu til kynningar í skipulags- og framkvæmdaráði.

10.Umsagnarbeiðni vegna tækifærisleyfis

Málsnúmer 202609092Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur umsagnarbeiðni vegna umsóknar um tækifærisleyfi vegna uppistands.
Byggðarráð veitir jákvæða umsögn.

11.Ósk um umsögn um tímabundið áfengisleyfi frá Þekkingarneti Þingeyinga vegna HönnunarÞings 2026

Málsnúmer 202609012Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur umsagnarbeiðni vegna umsóknar um tækifærisleyfi frá Þekkingarneti Þingeyinga vegna Hönnunarþings 2026 á Stéttinni á Húsavík, haldið þann 25. og 26. september nk.
Byggðarráð veitir jákvæða umsögn.

12.Gallup - Þjónustukönnun sveitarfélaga 2026

Málsnúmer 202609034Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur boð um þátttöku í þjónustukönnun Gallup. Verð án vsk fyrir grunnpakkann er 389.900 kr.
Byggðarráð samþykkir að taka þátt í þjónustukönnun Gallup.

13.Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026

Málsnúmer 202512097Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur fundargerð 1001. fundar stjórnar Sambands Íslenskra sveitarfélaga frá 28. ágúst sl.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 10:50.