Möguleg sala ríkisins á húsnæði á Aðaldalsflugvelli
Málsnúmer 202609055
Vakta málsnúmerByggðarráð Norðurþings - 527. fundur - 10.09.2026
Í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2027 er að finna heimild til sölu á flugstöð Húsavíkurflugvallar í Aðaldal. Byggðarráð hefur söluheimildina til umfjöllunar.
Ráðinu hugnast ekki áform um sölu flugstöðvarinnar vegna hlutverks vallarins m.a. í sjúkraflugi og vegna áforma um atvinnuuppbyggingu. Þrátt fyrir að áætlunarflug fari ekki um völlinn sem stendur er nokkur umferð um völlinn vegna einkaflugs m.a. aðila sem kanna aðstæður á svæðinu til atvinnuuppbyggingar.
Byggðarráð felur sveitartjóra að koma á fundi með fjármálaráðherra vegna áforma ríkisins um sölu á flugstöð Húsavíkurflugvallar í Aðaldal.