Starfsstöð Stofnunar atvinnuveganna
Málsnúmer 202609113
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Norðurþings - 166. fundur - 17.09.2026
Stofnun atvinnuveganna verður til við sameiningu Fiskistofu, Verðlagsstofu skiptaverðs og Matvælastofnunar (MAST) og er ætlunin að hún taki til starfa í upphafi árs 2027.
Hluti verkefna nýrrar Stofnunar atvinnuveganna eru m.a. verkefni sem fram að því að stofnunin tekur til starfa eru á höndum heilbrigðiseftirlits sveitarfélaganna. Þá tengjast verkefni stofnunarinnar starfsemi sem er umfangsmikil í Þingeyjarsýslunum gömlu, eins og fiskrækt, jarðrækt og matvælaframleiðsla.
Nýverið kom út skýrsla á vegum Byggðastofnunar um staðsetningu ríkisstarfa á árinu 2025. Þar kemur fram að störfum á vegum ríksins hefur frá árinu 2023 til ársins 2025 fækkað um 24 í Norðurþingi, úr 233 í 209.
Í sveitarfélögum sem eru sambærileg Norðurþingi eru störf á vegum ríkisins ívið fleiri. Má nefna t.d. Borgarbyggð 249 störf, Ísafjörður 365 störf, Skagafjörður 336 störf, Fjarðabyggð 282 störf og Múlaþing 330 störf. Í sumum þeirra hefur störfum m.a.s. fjölgað á undanförnum árum.
Sveitarstjórn Norðurþings leggur til við atvinnuvegaráðherra að Stofnun atvinnuveganna opni starfsstöð í Norðurþingi á árinu 2027 og ráðið í staðbundin störf á starfstöðinni.
Lagt er til að sveitarstjóra verði falið að koma tillögunni á framfæri við atvinnuvegaráðherra.

Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða.