Tjaldsvæðið á Húsavík 2026
Málsnúmer 202609121
Vakta málsnúmerSkipulags- og framkvæmdaráð - 244. fundur - 22.09.2026
Tjald ehf. óskar eftir að fá framlengdan leigusamninginn fyrir tjaldsvæðið á Húsavík um eitt ár eins og heimilt er samkvæmt gildandi leigusamningi.
Skipulags- og framkvæmdaráð þakkar fyrir gott samstarf sl. 3 ár og samþykkir að framlengja leigusamninginn við Tjald ehf. um eitt ár, líkt og heimilt er skv. 5. grein samningsins og felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að ganga frá samningi þess efnis.