Aðalskoðun leiksvæða 2026- Lundur
Málsnúmer 202609022
Vakta málsnúmerFjölskylduráð - 246. fundur - 08.09.2026
Fjölskylduráð hefur til umfjöllunar skýrslu BSI á Íslandi vegna aðalskoðunar leiksvæðis í Lundi.
Aðalskoðun er framkvæmd samkvæmt reglugerð 1025/2022 um öryggi
leikvallatækja og leiksvæða og eftirlit með þeim.

Fjölskylduráð vísar málinu til skipulags- og framkvæmdaráðs. Mikilvægt er að tillit sé tekið til athugasemda í úttekt BSI og farið verði sem allra fyrst í nauðsynlegt viðhald. Leggur ráðið jafnframt áherslu á að gerð verði viðhaldsáætlun á lóðinni við Öxarfjarðarskóla.
Skipulags- og framkvæmdaráð - 244. fundur - 22.09.2026
Erindi frá skólastjóra Öxarfjarðarskóla dags. 8. september 2026 vegna úttekar BSI á leikvöllum skólans.
Skipulags- og framkvæmdaráð þakkar skólastjóra Öxarfjarðarskóla fyrir erindið.
Norðurþing er með samning við BSI á Íslandi um úttekt á leikvöllum sveitarfélagsins. Árlegar úttektir fara yfirleitt fram í júní og júlí og er ekki boðað sérstaklega til þeirra á undan. Þegar úttektum er lokið og skýrslur liggja fyrir um ástand leikvalla, hefur venjan verið sú að nauðsynlegar úrbætur hafa verið gerðar innan tilskilins frests. Ráðið felur sviðsstjóra að vinna að úrbótum á leiksvæðinu áður en frestur rennur út og gera viðhalds- og kostnaðaráætlun fyrir leikvelli í sveitarfélaginu öllu og leggja fyrir ráðið að nýju.