Fara í efni

Fjölskylduráð

246. fundur 08. september 2026 kl. 08:30 - 11:30 í fundarsal GB5
Nefndarmenn
  • Rebekka Ásgeirsdóttir formaður
  • Elísabet Anna Helgadóttir varaformaður
  • Guðrún Þóra Hallgrímsdóttir aðalmaður
  • Ágúst Sigurður Óskarsson aðalmaður
  • Halldór Jón Gíslason aðalmaður
  • Svala Rut Stefánsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Jón Höskuldsson sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Stefán Jón Sigurgeirsson verkefnastjóri á velferðarsviði
  • Eyrún Torfadóttir Ritari
  • Nele Marie Beitelstein fjölmenningarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Eyrún Torfadóttir stjórnsýslufulltrúi
Dagskrá
Sigríður Valdís Sæbjörnsdóttir, leikskólastjóri Grænuvalla og Ágústa Pálsdóttir, fulltrúi kennara, sátu fundinn undir liðum 1 og 2

Hrund Ásgeirsdóttir, skólastjóri Öxarfjarðarskóla og Silja Rut Stefánsdóttir, fulltrúi foreldra sátu fundinn undir liðum 3 og 4.

Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir, skólastjóri Borgarhólsskóla, sat fundinn undir lið 4 .

Nele Marie Beitelstein, fjölmenningarfulltrúi, sat fundinn undir liðum 7-9.

Stefán Jón Sigurgeirsson, verkefnastjóri á velferðarsviði, sat fundinn undir liðum 10 og 11.

Lára Björg Friðriksdóttir, yfirfélagsráðgjafi, sat fundinn undir lið 11.

1.Aðalskoðun leiksvæða 2026 - Grænuvellir.

Málsnúmer 202609007Vakta málsnúmer

Fjölskylduráð hefur til umfjöllunar skýrslu BSI á Íslandi vegna aðalskoðunar leiksvæðis Grænuvalla.
Aðalskoðun er framkvæmd samkvæmt reglugerð 1025/2022 um öryggi
leikvallatækja og leiksvæða og eftirlit með þeim.
Fjölskylduráð vísar málinu til skipulags- og framkvæmdaráðs. Mikilvægt er að tillit sé tekið til athugasemda í útekt BSI og farið verði sem allra fyrst í nauðsynlegt viðhald. Leggur ráðið jafnframt áherslu á að gerð verði viðhaldsáætlun á lóðinni við Grænuvelli.


Halldór óskar bókað:

Það er gríðarlega mikilvægt að sveitarfélagið standi vel að öryggismálum, viðhaldi og endurnýjun leiksvæða. Það er ljóst að viðhaldi og endurnýjun hefur ekki verið sinnt sem skildi og gefur ástandsskoðun það skýrt til kynna. Það þarf að bregðast hratt við og hefja endurnýjun leiktækja svo að börn á leikskólanum Grænuvöllum hafi leiktæki við hæfi. Svör leikskólastjóra gefa til kynna að sveitarfélagið hafi dregið lappirnar og börnin eiga betra skilið.

Ágúst óskar bókað:

Rétt er að þakka mörg erindi, áhyggjur og brýningar vegna aðstæðna barna og starfsmanna á lóð Leikskólans Grænuvöllum.
Jafnframt eru Hrannari Rafni Jónassyni og Elínu Ragnarsdóttur, í samstarfi við Pizzakofann og fleiri aðila, þökkuð þeirra hlýhugur og fjársöfnun til kaupa á leiktækjum á lóðina.
Langvarandi vanræksla er á viðhaldi og endurbótum. BSÍ skoðunaraðili hefur ár eftir ár gert alvarlegar athugasemdir við öryggi barna á lóðinni.
Fyrir áratugum var lóðin hönnuð fyrir minni leikskóla. Lóðin er úr sér gengin.
Mat mitt, leikskólastjóra, foreldra og samfélagisns er að farið verði í endurhönnun og tilheyrandi endurbætur á leikskólalóðinni.
Lagt er til að sú vinna hefjist haustið 2026 og unnin í samvinnu við leikskólastjóra, starfsmenn og foreldra.
Við vinnuna er rétt að hafa í forgrunni uppeldis- og skólastarf sem fer fram á Grænuvöllum og öryggi nemenda, starfsmanna og þeirra sem lóðina heimsækja.
Gera skal ráð fyrir framkvæmdum á árinu 2027 og hvetur undirritaður Skipulags- og framkvæmdaráð og Byggðaráð til að taka málið til skoðunar og afgreiðslu.


2.Heimgreiðslur til foreldra barna á leikskólaaldri.

Málsnúmer 202306085Vakta málsnúmer

Fjölskylduráð hefur til umfjöllunar endurskoðun reglna um heimgreiðslur til foreldra barna á leikskólaaldri.
Fjölskylduráð felur fræðslufulltrúa að uppfæra reglurnar í samræmi við umræður á fundinum og leggja þær fyrir ráðið að nýju.

3.Aðalskoðun leiksvæða 2026- Lundur

Málsnúmer 202609022Vakta málsnúmer

Fjölskylduráð hefur til umfjöllunar skýrslu BSI á Íslandi vegna aðalskoðunar leiksvæðis í Lundi.
Aðalskoðun er framkvæmd samkvæmt reglugerð 1025/2022 um öryggi
leikvallatækja og leiksvæða og eftirlit með þeim.
Fjölskylduráð vísar málinu til skipulags- og framkvæmdaráðs. Mikilvægt er að tillit sé tekið til athugasemda í úttekt BSI og farið verði sem allra fyrst í nauðsynlegt viðhald. Leggur ráðið jafnframt áherslu á að gerð verði viðhaldsáætlun á lóðinni við Öxarfjarðarskóla.

4.Reglugerð um notkun síma og snjalltækja á skólatíma í grunnskólum og frístundaheimilum.

Málsnúmer 202608166Vakta málsnúmer

Til kynningar er reglugerð um notkun síma og snjalltækja á skólatíma í grunnskóla og frístundaheimilum frá mennta- og barnamálaráðuneytinu.
Lagt fram til kynningar.

5.Aðalskoðun leiksvæða 2026-Borgarhólsskóli

Málsnúmer 202609035Vakta málsnúmer

Fjölskylduráð hefur til umfjöllunar skýrslu BSI á Íslandi vegna aðalskoðunar leiksvæðis Borgarhólsskóla. Aðalskoðun er framkvæmd samkvæmt reglugerð 1025/2022 um öryggi leikvallatækja og leiksvæða og eftirlit með þeim.
Fjölskylduráð vísar málinu til skipulags- og framkvæmdaráðs. Mikilvægt er að tillit sé tekið til athugasemda í úttekt BSI og farið verði sem allra fyrst í nauðsynlegt viðhald. Leggur ráðið jafnframt áherslu á að gerð verði viðhaldsáætlun á lóðinni við Borgarhólsskóla.

6.Aðalskoðun leiksvæða 2026 - Skólalóðir og leiksvæði

Málsnúmer 202609027Vakta málsnúmer

Fjölskylduráð hefur til kynningar skýrslur BSI á Íslandi vegna aðalskoðunar á leikvöllum í Norðurþingi.
Aðalskoðun er framkvæmd samkvæmt reglugerð 1025/2022 um öryggi
leikvallatækja og leiksvæða og eftirlit með þeim.
Á fundi Fjölskylduráðs 11. apríl. 2022 var ákveðið að fækka leikvöllum á Húsavík og byggja upp þrjá veglega leikvelli sem staðsetja átti í norðurbæ, suðurbæ og við Borgarhólsskóla. Árið 2023 var farið í viðhald á leikvelli í norðurbæ á milli Höfðavegs og Laugarbrekku, nú í ár opnaði nýr leikvöllur í suðurbæ á Hólaravelli við Langholt og framkvæmdir standa yfir á lóð Borgarhólsskóla.
Því hefur lengi staðið til að leggja af stórann hluta þeirra leikvalla sem fjallað er um í ástands skýrslunum sem liggja fyrir ráðinu.
Fjölskylduráð vísar málinu til skipulags- og framkvæmdaráðs og leggur til að leikvellir við Stórhól, við Lyngbrekku og Sólbrekku, við Hjarðarholtstún og við Uppsalaveg og Hjarðarholt verði aflagðir. Leiktækin sem fyrir eru verði yfirfarin með tilliti til þess hvort þau geti nýst á öðrum leikvöllum sveitarfélagsins.
Ráðið leggur áherslu á það við Skipulags- og framkvæmdaráð að tekið verði tillit til athugasemda frá útekt BSI og farið verði sem allra fyrst í nauðsynlegt viðhald þar sem við á. Fjölskylduráð leggur jafnframt áherslu á að gerð verði viðhaldsáætlun fyrir leikvelli í sveitarfélaginu öllu

7.Við sama borð - fjölmenningarleg matar-, menningar- og samverukvöld í Norðurþingi

Málsnúmer 202607048Vakta málsnúmer

Fyrir Fjölskylduráði liggur verkefnatillagan "Við sama borð" til umfjöllunar. Verkefnið miðar að því að efla samfélagslega þátttöku, stuðla að auknum kynnum milli íbúa af ólíkum uppruna og styrkja samfélagssamheldni í Norðurþingi. Jafnframt er óskað eftir stuðningi ráðsins við áframhaldandi þróun verkefnisins og að kannaðir verði möguleikar á fjármögnun þess með styrkjum og öðrum fjármögnunarleiðum.
Fjölskylduráð fagnar framlagðri verkefnahugmynd „Við sama borð“ og felur fjölmenningarfulltrúa að vinna verkefnið áfram. Jafnframt verði kannaðir möguleikar á styrkjum og annarri fjármögnun og nánari útfærsla lögð fyrir ráðið þegar fyrir liggja niðurstöður um fjármögnun og framkvæmd verkefnisins.

8.Umsókn í lista- og menningarsjóð 2026

Málsnúmer 202609002Vakta málsnúmer

Fyrir fjölskylduráði liggur umsókn í lista- og menningarsjóð. Skrítla ehf. sækir um 60.000 kr. vegna heimsóknar Skoppu og Skrítlu til Húsavíkur, þar sem boðið verður upp á fjörubingó fyrir fjölskyldur í Suðurfjöru þann 20. september 2026.
Fjölskylduráð samþykkir að veita Skrítla ehf. styrk upp á 60.000 kr.

9.Starfsemi Bókasafnsins á Raufarhöfn

Málsnúmer 202607028Vakta málsnúmer

Fyrir fjölskylduráði liggur áframhaldandi umfjöllun um fyrirkomulag bókasafnsþjónustu á Raufarhöfn. Fyrir liggur minnisblað þar sem farið er yfir núverandi stöðu, kostnað og mögulegar leiðir varðandi framtíðarfyrirkomulag þjónustunnar.
Meirihluti fjölskylduráðs með atkvæðum Rebekku, Guðrúnar og Elísubetar samþykkir að 10% starf við bókasafnið á Raufarhöfn verði auglýst að nýju. Samhliða verði áfram unnið að mögulegu fyrirkomulagi pöntunar- og sendingarþjónustu. Takist ekki að manna starfið verði málið tekið aftur fyrir í fjölskylduráði og tekin ákvörðun um framtíðarfyrirkomulag bókasafnsþjónustu á Raufarhöfn.

Halldór og Ágúst sátu hjá við afgreiðslu þessa máls.

10.Ósk um stuðning við starfsemi Tankanna á Raufarhöfn í gegnum unglingavinnu Norðurþings

Málsnúmer 202608117Vakta málsnúmer

Fyrir fjölskylduráði liggur erindi þar sem óskað er eftir því að sveitarfélagið taki til skoðunar að veita Tönkunum á Raufarhöfn stuðning í formi vinnuframlags ungmenna í sumarvinnu sveitarfélagsins sumarið 2027 og komandi sumur.
Fjölskylduráð felur verkefnastjóra á velferðarsviði að taka stöðuna þegar umsóknir fyrir vinnuskóla liggja fyrir.

11.Samþætting starfsáætlun og starfsdagatal 2026-27

Málsnúmer 202609021Vakta málsnúmer

Fyrir fjölskylduráði liggur fyrir til kynningar starfsáætlun og starfsdagatal 2026-2027
Lagt fram til kynningar.

12.Trúnaðarmál

Málsnúmer 202609023Vakta málsnúmer

Fyrir fjölskylduráði liggur trúnaðarmál.
Fært í trúnaðarmálabók.

Fundi slitið - kl. 11:30.