Fara í efni

Aðalskoðun leiksvæða 2026 - Grænuvellir.

Málsnúmer 202609007

Vakta málsnúmer

Fjölskylduráð - 246. fundur - 08.09.2026

Fjölskylduráð hefur til umfjöllunar skýrslu BSI á Íslandi vegna aðalskoðunar leiksvæðis Grænuvalla.
Aðalskoðun er framkvæmd samkvæmt reglugerð 1025/2022 um öryggi
leikvallatækja og leiksvæða og eftirlit með þeim.
Fjölskylduráð vísar málinu til skipulags- og framkvæmdaráðs. Mikilvægt er að tillit sé tekið til athugasemda í útekt BSI og farið verði sem allra fyrst í nauðsynlegt viðhald. Leggur ráðið jafnframt áherslu á að gerð verði viðhaldsáætlun á lóðinni við Grænuvelli.


Halldór óskar bókað:

Það er gríðarlega mikilvægt að sveitarfélagið standi vel að öryggismálum, viðhaldi og endurnýjun leiksvæða. Það er ljóst að viðhaldi og endurnýjun hefur ekki verið sinnt sem skildi og gefur ástandsskoðun það skýrt til kynna. Það þarf að bregðast hratt við og hefja endurnýjun leiktækja svo að börn á leikskólanum Grænuvöllum hafi leiktæki við hæfi. Svör leikskólastjóra gefa til kynna að sveitarfélagið hafi dregið lappirnar og börnin eiga betra skilið.

Ágúst óskar bókað:

Rétt er að þakka mörg erindi, áhyggjur og brýningar vegna aðstæðna barna og starfsmanna á lóð Leikskólans Grænuvöllum.
Jafnframt eru Hrannari Rafni Jónassyni og Elínu Ragnarsdóttur, í samstarfi við Pizzakofann og fleiri aðila, þökkuð þeirra hlýhugur og fjársöfnun til kaupa á leiktækjum á lóðina.
Langvarandi vanræksla er á viðhaldi og endurbótum. BSÍ skoðunaraðili hefur ár eftir ár gert alvarlegar athugasemdir við öryggi barna á lóðinni.
Fyrir áratugum var lóðin hönnuð fyrir minni leikskóla. Lóðin er úr sér gengin.
Mat mitt, leikskólastjóra, foreldra og samfélagisns er að farið verði í endurhönnun og tilheyrandi endurbætur á leikskólalóðinni.
Lagt er til að sú vinna hefjist haustið 2026 og unnin í samvinnu við leikskólastjóra, starfsmenn og foreldra.
Við vinnuna er rétt að hafa í forgrunni uppeldis- og skólastarf sem fer fram á Grænuvöllum og öryggi nemenda, starfsmanna og þeirra sem lóðina heimsækja.
Gera skal ráð fyrir framkvæmdum á árinu 2027 og hvetur undirritaður Skipulags- og framkvæmdaráð og Byggðaráð til að taka málið til skoðunar og afgreiðslu.