Fara í efni

Ósk um stuðning við starfsemi Tankanna á Raufarhöfn í gegnum unglingavinnu Norðurþings

Málsnúmer 202608117

Vakta málsnúmer

Fjölskylduráð - 246. fundur - 08.09.2026

Fyrir fjölskylduráði liggur erindi þar sem óskað er eftir því að sveitarfélagið taki til skoðunar að veita Tönkunum á Raufarhöfn stuðning í formi vinnuframlags ungmenna í sumarvinnu sveitarfélagsins sumarið 2027 og komandi sumur.
Fjölskylduráð felur verkefnastjóra á velferðarsviði að taka stöðuna þegar umsóknir fyrir vinnuskóla liggja fyrir.