Fara í efni

Starfsemi Bókasafnsins á Raufarhöfn

Málsnúmer 202607028

Vakta málsnúmer

Fjölskylduráð - 244. fundur - 11.08.2026

Fyrir fjölskylduráði liggur umfjöllun um fyrirkomulag bókasafnsþjónustu á Raufarhöfn.
Fjölskylduráð mun halda áfram umfjöllun um fyrirkomulag bókasafnsþjónustu á Raufarhöfn á næsta fundi ráðsins.

Fjölskylduráð - 246. fundur - 08.09.2026

Fyrir fjölskylduráði liggur áframhaldandi umfjöllun um fyrirkomulag bókasafnsþjónustu á Raufarhöfn. Fyrir liggur minnisblað þar sem farið er yfir núverandi stöðu, kostnað og mögulegar leiðir varðandi framtíðarfyrirkomulag þjónustunnar.
Meirihluti fjölskylduráðs með atkvæðum Rebekku, Guðrúnar og Elísubetar samþykkir að 10% starf við bókasafnið á Raufarhöfn verði auglýst að nýju. Samhliða verði áfram unnið að mögulegu fyrirkomulagi pöntunar- og sendingarþjónustu. Takist ekki að manna starfið verði málið tekið aftur fyrir í fjölskylduráði og tekin ákvörðun um framtíðarfyrirkomulag bókasafnsþjónustu á Raufarhöfn.

Halldór og Ágúst sátu hjá við afgreiðslu þessa máls.