Fara í efni

Fjölskylduráð

244. fundur 11. ágúst 2026 kl. 08:30 - 11:30 í fundarsal GB5
Nefndarmenn
  • Rebekka Ásgeirsdóttir formaður
  • Elísabet Anna Helgadóttir varaformaður
  • Ágúst Sigurður Óskarsson aðalmaður
  • Halldór Jón Gíslason aðalmaður
  • Signe Ann-Charlotte Fernholm áheyrnarfulltrúi
  • Guðni Már Kjartansson varamaður
Starfsmenn
  • Jón Höskuldsson sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Stefán Jón Sigurgeirsson verkefnastjóri á velferðarsviði
  • Eyrún Torfadóttir Ritari
  • Tinna Ósk Óskarsdóttir félagsmálastjóri
  • Nele Marie Beitelstein fjölmenningarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Eyrún Torfadóttir stjórnsýslufulltrúi
Dagskrá
Hrund Ásgeirsdóttir, skólastjóri Öxarfjarðarskóla, Christoph Völl, starfsmaður Öxarfjarðarskóla, Silja Rún Stefánsdóttir, fulltúi foreldra sátu fundinn undir lið 1.

Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir, skólastjóri Borgarhólsskóla, sat fundinn undir lið 1.

Nele Marie Beitelstein, fjölmenningarfulltrúi, sat fundinn undir liðum 3-6.

Stefán Jón Sigurgeirsson, verkefnastjóri á velferðarsviði, sat fundinn undir lið 7.

Tinna Ósk Óskarsdóttir, félagsmálstjóri, sat fundinn undir liðum 8-11.

1.Íslenska æskulýðsrannsóknin 2026

Málsnúmer 202512069Vakta málsnúmer

Fjölskylduráð hefur til umfjöllunar niðurstöður grunnskólakönnunar Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar vorið 2026.
Lagt fram til kynningar.

2.Reglur um stuðning til náms í menntavísindum - Endurskoðun

Málsnúmer 202608024Vakta málsnúmer

Reglur um stuðning til náms í menntavísindum eru lagðar fram til endurskoðunar. Lagt er til að umsóknarfrestur um stuðning verði 1. júlí ár hvert í stað 1. júní.
Fjölskylduráð samþykkir reglur um stuðning til náms í menntavísindum með áorðnum breytingum.

3.Þau skilja sem vilja

Málsnúmer 202607017Vakta málsnúmer

Fyrir fjölskylduráði liggur kynning á samfélagsviðburði verkefnisins Þau skilja sem vilja og boð um þátttöku sveitarfélagsins.
Fjölskylduráð samþykkir þáttöku í verkefninu.

4.Erindi vegna brúðuleiksýningar Brúðubílsins

Málsnúmer 202607039Vakta málsnúmer

Norðurþingi barst erindi frá Brúðubílnum með tilboði um brúðuleiksýningu fyrir börn og fjölskyldur á austursvæði sveitarfélagsins 18. júlí 2026. Fjölskylduráð samþykkti erindið með tölvupósti 14. júlí þar sem ráðið var í sumarleyfi. Málið er nú lagt fram til staðfestingar.
Fjölskylduráð staðfestir samþykki sitt, sem veitt var með tölvupósti 14. júlí 2026, um að halda brúðuleiksýningu fyrir börn á austursvæði Norðurþings 18. júlí 2026.

5.Umsókn í lista- og menningarsjóð 2026

Málsnúmer 202607043Vakta málsnúmer

Fyrir fjölskylduráði liggur umsókn í Lista- og menningarsjóð Norðurþings. Guðný María Waage sækir um 35.000 kr. til kaupa á efni og búnaði vegna hobbyhesta þrautabrautar fyrir börn á Mærudögum.
Fjölskylduráð samþykkir að veita Guðnýju Maríu Waage styrk upp á 35.000 kr.

6.Starfsemi Bókasafnsins á Raufarhöfn

Málsnúmer 202607028Vakta málsnúmer

Fyrir fjölskylduráði liggur umfjöllun um fyrirkomulag bókasafnsþjónustu á Raufarhöfn.
Fjölskylduráð mun halda áfram umfjöllun um fyrirkomulag bókasafnsþjónustu á Raufarhöfn á næsta fundi ráðsins.

7.Ósk Tillaga um enduruppbyggingu motocrossbrautar á Húsavík og uppbyggingu æfingastarfs fyrir börn og ungmenni

Málsnúmer 202607047Vakta málsnúmer

Fyrir fjölskylduráð liggur tillaga að enduruppbyggingu motorcrossbrautar Húsavíkur og uppbyggingu æfingastarfs fyrir börn og ungmenni
Fjölskylduráð felur verkefnastjóra á velferðarsviði að eiga samtal við hlutaðeiganda.

8.Hverfisráð Raufarhafnar 2023-2026

Málsnúmer 202401123Vakta málsnúmer

Á 523. fundi byggðarráðs var eftirfarandi bókað:
Byggðarráð vísar lið nr. 1 í fundargerð Hverfisráðs til umfjöllunar í fjölskylduráði.
Fjölskylduráð leggur til að fundað verði með stjórn Félags eldri borgara á Raufarhöfn um mál 1. í fundargerð Hverfisráðs Raufarhafnar.

Ágúst óskar bókað:
Þann 12. maí 2026 fundaði Hverfisráð Raufarhafnar (Nanna Steina Höskuldsdóttir, Einar Sigurðsson og Margrét Rögnvaldsdóttir) um skipulag þjónustu fyrir eldri borgara á Raufarhöfn. Þar lýsa þau undrun sinni á skipulagi þjónustu við aldraða á svæðinu. Skv. ályktun þeirra var ekkert samráð við notendur, íbúa eða starfsmenn eða stjórnendur DA sf. sem hafa sinnt þjónustu á svæðinu.
Með ákvörðun Fjölskylduráðs frá janúar 2026 er komið mikið og flókið þjónustunet fyrir 67 ára og eldri á Kópaskeri og Raufarhöfn, þar sem þrír mismunandi aðilar koma að þjónustunni fyrir fáa notendur á dreifbýlu svæði.
Á Kópaskeri er DA sf. með dagdvöl, matarsölu og tómstundarstarfsemi alla virka daga í Stóru ? Mörk húsnæði Norðurþings (DA) á Kópaskeri. Auk þess verður frá september n.k. í boði tómstundarstarf fyrir eldri borgara í grunnskólanum á Kópaskeri, einn dag í viku. Heildarfjöldi notenda þjónustunnar eru 2-12 daglega. Auk þess er FEBÖ með sína félagsstarfsemi.
Á Raufarhöfn verður DA sf. með dagdvöl og matarsölu í Vík. FEBR verður með sína starfsemi í húsnæði félagsins í Breiðabliki 1-2 daga í viku. Auk þess verður frá september n.k. í boði tómstundarstarf fyrir eldri borgara í grunnskólanum á Raufarhöfn einn dag í viku. Heildarfjöldi notenda þjónustunnar er 3-12 daglega.
Þessi nýja þjónusta á vegum Norðurþings var skipulögð og ákveðin án samstarfs við notendur, íbúa, starfsmenn stjórn eða stjórnendur DA sf. og aðra hagaðila.
Við skipulags þjónustunnar er ekki tekið tillit til óska þjónustuhópsins. Notendur á Kópaskeri vilja gjarnan nýta sitt glæsilega sérbyggða félags- og tómstundarhúsnæði (250 ferm.) í Stóru-Mörk og notendur á Raufarhöfn vilja nýta sína félags- og tómstundaaðstöðu í Breiðabliki. Mikið framlag hefur verið frá hópnum og öðrum íbúum á Raufarhöfn til uppbyggingar húsnæðisins í samvinnu við fyrri sveitarstjórn Norðurþings.
Hin nýja þjónusta Norðurþings mun kosta á árinu 2026 stórar fjárhæðir í formi launa, starfskostnaðar og leigu á Grunnskólanum á Kópaskeri og Raufarhöfn. Á árinu verður þessi kostnaður nálægt 8 milljónum, eða um 60.000 fyrir hverja þjónustaða klukkustund (nákv. kostn. liggur ekki fyrir). Óvíst er hversu hentug húsnæði og búnaður fyrir grunnskóla er fyrir starf eldri íbúa.
Stefnur og viðurkenndar aðferðir í skipulagi á þjónustu við eldri íbúa sveitarfélaga felast í ríku samstarfi við notendur og nýta sköpunar- og drifkraft þeirra sem mest og best.
Mat undirritaðs er að hægt sé í góðu samstarfi við notendur á Kópaskeri og Raufarhöfn, stjórn og starfsfólk Dvalarheimilis aldraðra sf. (DA) að skipuleggja þessa þjónustu á mun hagkvæmari og skilvirkari hátt. Óþarfi er að Norðurþing og DA sf. séu bæði að vasast í sömu þjónustuþáttum. Notendur á fámennum dreifbýlum svæðum og byggðakjörnum þurfa að vera virkir aðilar í skipulagi síns umhverfis og þjónustu, miða þarf skipulag við þarfir þeirra og óskir.


Rebekka, Elísabet, Guðni og Ann- Charlotte óska bókað:
Málið sem liggur fyrir fundinum er erindi frá hverfisráði Raufarhafnar og varðar ekki félagsstarf í Stóru Mörk á Kópaskeri. Fyrir liggur að eiga samtal við Félag eldri borgara á Raufarhöfn líkt og kemur fram í bókun hér að ofan.

9.Trúnaðarmál

Málsnúmer 202608028Vakta málsnúmer

Fyrir fjölskylduráði liggur trúnaðarmál.
Fært í trúnaðarmálabók.

10.Drög að fundaáætlun fjölskylduráðs veturinn 2026 - 2027

Málsnúmer 202608025Vakta málsnúmer

Fyrir fjölskylduráði liggja drög að fundadagskrá fjölskylduráðs veturinn 2026 - 2027.
Lagt fram til kynningar.

11.Áform um breytingu á lögum nr.382018 í samráðsgátt stjórnvalda

Málsnúmer 202608046Vakta málsnúmer

Fjölskylduráð felur félagsmálastjóra að senda inn umsögn í samráðsgátt stjórnvalda í samræmi við umræður á fundinum.

Fundi slitið - kl. 11:30.