Erindi vegna brúðuleiksýningar Brúðubílsins
Málsnúmer 202607039
Vakta málsnúmerFjölskylduráð - 244. fundur - 11.08.2026
Norðurþingi barst erindi frá Brúðubílnum með tilboði um brúðuleiksýningu fyrir börn og fjölskyldur á austursvæði sveitarfélagsins 18. júlí 2026. Fjölskylduráð samþykkti erindið með tölvupósti 14. júlí þar sem ráðið var í sumarleyfi. Málið er nú lagt fram til staðfestingar.
Fjölskylduráð staðfestir samþykki sitt, sem veitt var með tölvupósti 14. júlí 2026, um að halda brúðuleiksýningu fyrir börn á austursvæði Norðurþings 18. júlí 2026.