Umsókn um byggingarleyfi fyrir 53,8 m² tækjageymslu að Núpskötlu 1 á Melrakkasléttu
Málsnúmer 202608008
Vakta málsnúmerSkipulags- og framkvæmdaráð - 241. fundur - 11.08.2026
Gunnþór Kristjánsson óskar eftir byggingarleyfi fyrir 53,8 m² tækjageymslu á Núpskötlu á Melrakkasléttu. Teikningar eru unnar af Sigurbergi Árnasyni arkitekt. Fyrirhugað hús er byggt úr fyrirliggjandi timbri og með steyptri botnplötu. Brúttóflatarmál húss er 53,8 m² og brúttórúmmál er 184,3 m3.
Skipulags- og framkvæmdaráð fellst á uppbyggingu hússins og heimilar byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi þegar fullnægjandi gögnum þar að lútandi hefur verið skilað.