Fræðsla um hinsegin málefni fyrir kjörna fulltrúa og starfsfólk sveitarfélaga
Málsnúmer 202608095
Vakta málsnúmerByggðarráð Norðurþings - 526. fundur - 27.08.2026
Innviðaráðuneytið býður kjörnum fulltrúum og starfsfólki sveitarfélaga til fræðslufundar um hinsegin málefni. Samtökin ´78 sjá um fræðsluna en markmiðið er auka þekkingu sveitarstjórnarfólks á réttindum og félagslegri stöðu hinsegin fólks. Fræðslan fer fram á fjarfundi (Teams) og í boði eru tvær tímasetningar til að velja úr:
Miðvikudagur 9. september kl. 16-17:30
Fimmtudagur 10. september kl. 11-12:30
Miðvikudagur 9. september kl. 16-17:30
Fimmtudagur 10. september kl. 11-12:30
Á sama tíma vill ráðið fagna þessu framtaki og leggja áherslu á mikilvægi þess að auka þekkingu og færni innan stjórnsýslunnar í málefnum hinsegin fólks, til að tryggja áframhaldandi framfarir, jafnrétti og inngildingu í sveitarfélaginu. Fræðsla sem þessi er dýrmætt skref í átt að auknu jafnrétti og fagmennsku í öllu starfi sveitarfélagsins.