Fara í efni

Fjölskylduráð

251. fundur 03. nóvember 2026 kl. 08:30 - 10:45 í fundarsal GB5
Nefndarmenn
  • Rebekka Ásgeirsdóttir formaður
  • Elísabet Anna Helgadóttir varaformaður
  • Ágúst Sigurður Óskarsson aðalmaður
  • Halldór Jón Gíslason aðalmaður
  • Signe Ann-Charlotte Fernholm áheyrnarfulltrúi
  • Guðni Már Kjartansson varamaður
Starfsmenn
  • Stefán Jón Sigurgeirsson verkefnastjóri á velferðarsviði
  • Eyrún Torfadóttir Ritari
  • Tinna Ósk Óskarsdóttir félagsmálastjóri
  • Nele Marie Beitelstein fjölmenningarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Eyrún Torfadóttir stjórnsýslufulltrúi
Dagskrá
Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir, skólastjóri Borgarhólsskóla, Daniel Annisius og Jónína Rún Agnarsdóttir fulltrúar foreldraráðs sátu fundinn undir lið 1.
Nele Marie Beitelstein, fjölmenningarfulltrúi, sat fundinn undir liðum 2-5 og 9-12.
Stefán Jón Sigurgeirsson, verkefnastjóri á velferðarsviði, sat fundinn undir liðum 6-8 og 11-12.
Tinna Ósk Óskarsdóttir, félagsmálastjóri, sat fundinn undir liðum 11 og 12.
Bergþór Bjarnason, sveitarstjóri og Kristín Anna Hreinsdóttir, fjármálastjóri, sátu fundinn undir lið 12.

1.Ósk um að heimilisfang Borgarhólsskóla verði endurskoðað

Málsnúmer 202610112Vakta málsnúmer

Fyrir fjölskylduráði liggur erindi frá skólastjóra Borgarhólsskóla með ósk um að skráð heimilisfang skólans verði endurskoðað og því breytt þannig að það vísi á réttan aðkomustað fyrir foreldra, forráðamenn og aðra gesti skólans.
Vilji fjölskylduráðs er að koma til móts við óskir skólastjóra. Fræðslufulltrúa er falið að vinna málið áfram.
Fylgiskjöl:

2.Tendrun jólatrésins á Húsavík 2026

Málsnúmer 202610102Vakta málsnúmer

Til kynningar er fyrirhuguð dagsetning og drög að dagskrá jólatréstendrunar á Húsavík.
Lagt fram til kynningar.

3.Tendrun jólatrésins á Raufarhöfn 2026

Málsnúmer 202610104Vakta málsnúmer

Til kynningar er fyrirhuguð dagsetning og drög að dagskrá jólatréstendrunar á Raufarhöfn.
Lagt fram til kynningar.

4.Tendrun jólatrésins á Kópaskeri 2026

Málsnúmer 202610103Vakta málsnúmer

Til kynningar er fyrirhuguð dagsetning og drög að dagskrá jólatréstendrunar á Kópaskeri.
Lagt fram til kynningar.

5.Björgunarsveitin Núpar, umsókn um styrk v-áramótabrennu og flugeldasýningar 202627

Málsnúmer 202610117Vakta málsnúmer

Fyrir fjölskylduráði liggur beiðni um styrk vegna áramótabrennu og flugeldasýningar á Kópaskeri um áramótin 2026/2027.
Fjölskylduráð samþykkir að styrkja Björgunarsveitina Núpa að upphæð 600.000 kr. vegna áramótabrennu og flugeldasýningar á Kópaskeri. Ráðið felur fjölmenningarfulltrúa að ganga til samninga við hlutaðeigandi í samræmi við umræður á fundinum.

6.Formlegt erindi til Norðurþings

Málsnúmer 202610144Vakta málsnúmer

Fyrir fjölskylduráði liggur erindi frá Hrafnhildi B. nemanda við stjórnmálafræði við Framhaldsskólann á Húsavík þar sem óskað er eftir samtali um að bætta aðstöðu fyrir ungmenni í sveitarfélaginu.
Fjölskylduráð þakkar Hrafnhildi fyrir erindið og frumkvæðið. Ráðið tekur undir mikilvægi þess að ungt fólk hafi góða aðstöðu fyrir félagsstarf. Fjölskylduráð vísar erindinu til ungmennaráðs.

7.Stækkun vallarhússins við fótboltavöllinn á Húsavík

Málsnúmer 202610143Vakta málsnúmer

Fyrir fjölskylduráði liggur erindi frá Erlu Þyri og Andra Bergmann, nemendum í stjórnmálafræði við Framhaldsskólann á Húsavík þar sem óskað er eftir samtali um stækkun á vallarhúsi við GPG völlinnn á Húsavík.
Fjölskylduráð þakkar Erlu Þyri og Andra Bergmann fyrir erindið og frumkvæðið. Áður en tekin verður ákvörðun um framkvæmdir og endurbætur þarf að fara í vinnu við deiliskipulag á svæðinu. Ráðið vísar erindinu til skipulags- og framkvæmdaráðs.

8.Erindi um að breyta aftur opnunartíma Sundlaugar Húsavíkur

Málsnúmer 202610137Vakta málsnúmer

Fyrir fjölskulduráði liggur erindi frá Rakel Dögg Hafliðadóttur, kennara í stjórnmálafræði við Framhaldsskólann á Húsavík þar sem óskað er eftir samtali um að breyta aftur opnunartíma Sundlaugar Húsavíkur.
Fjölskylduráð þakkar Rakel fyrir erindið og frumkvæðið. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um breytingu á opnunartíma sundlaugarinnar á Húsavík. Opnunartíminn verður til endurskoðunar og umfjöllunar í fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2027.
Fylgiskjöl:

9.Erindi til Norðurþings

Málsnúmer 202610138Vakta málsnúmer

Fyrir fjölskylduráði liggur erindi frá Gunnari Marteinssyni, nemanda í stjórnmálafræði við Framhaldsskólann á Húsavík þar sem óskað er eftir samtali um aukna notkun Samkomuhússis á Húsavík.
Fjölskylduráð þakkar Gunnari fyrir erindið og frumkvæðið. Málefni Samkomuhússins á Húsavík eru til umræðu hjá skipulags- og framkvæmdaráði. Frekari upplýsinga er að vænta á næstu vikum.

10.Nýting á leikhúsinu

Málsnúmer 202610139Vakta málsnúmer

Fyrir fjölskylduráði liggur erindi frá Sigmundi Þorgrímssyni, nemanda í stjórnmálafræði við Framhaldsskólann á Húsavík þar sem óskað er eftir samtali um að skoða frekari nýtingu á Samkomuhúsinu á Húsavík.
Fjölskylduráð þakkar Sigmundi fyrir erindið og frumkvæðið. Málefni Samkomuhússins á Húsavík eru til umræðu hjá skipulags- og framkvæmdaráði. Frekari upplýsinga er að vænta á næstu vikum.

11.Gjaldskrár Norðurþings 2027

Málsnúmer 202610013Vakta málsnúmer

Fyrir fjölskylduráði liggja gjaldskrár velferðarsviðs Norðurþings 2027 til umfjöllunar.
Fjölskylduráð vísar gjaldskrám velferðarsviðs Norðurþings 2027 til byggðarráðs.

12.Fjárhagsáætlun Norðurþings 2027-2031

Málsnúmer 202606045Vakta málsnúmer

Fjölskylduráð hefur til umfjöllunar fjárhagsáætlun ársins 2027.
Fjölskylduráð vísar fjárhagsáætlunum ársins 2027 til byggðarráðs.

Fundi slitið - kl. 10:45.