Ósk um að heimilisfang Borgarhólsskóla verði endurskoðað
Málsnúmer 202610112
Vakta málsnúmerFjölskylduráð - 251. fundur - 03.11.2026
Fyrir fjölskylduráði liggur erindi frá skólastjóra Borgarhólsskóla með ósk um að skráð heimilisfang skólans verði endurskoðað og því breytt þannig að það vísi á réttan aðkomustað fyrir foreldra, forráðamenn og aðra gesti skólans.
Vilji fjölskylduráðs er að koma til móts við óskir skólastjóra. Fræðslufulltrúa er falið að vinna málið áfram.