Erindi um að breyta aftur opnunartíma Sundlaugar Húsavíkur
Málsnúmer 202610137
Vakta málsnúmerFjölskylduráð - 251. fundur - 03.11.2026
Fyrir fjölskulduráði liggur erindi frá Rakel Dögg Hafliðadóttur, kennara í stjórnmálafræði við Framhaldsskólann á Húsavík þar sem óskað er eftir samtali um að breyta aftur opnunartíma Sundlaugar Húsavíkur.
Fjölskylduráð þakkar Rakel fyrir erindið og frumkvæðið. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um breytingu á opnunartíma sundlaugarinnar á Húsavík. Opnunartíminn verður til endurskoðunar og umfjöllunar í fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2027.